Results for 2011-06
Kæru vinir, ég hef slæmar fregnir. Hann Axel, vinur minn og lífsförunautur til 16 ára eða svo, er látinn.
Í allri minni tíð hef ég aldrei kynnst jafn tignarlegum, greindum og frábærum ketti. Orð fá því ekki lýst hversu vænt mér þótti um hann og hversu mikið dauði hans hryggir mig. Hann var mikilli skynsemi og stórfenglegum persónuleika gæddur. Honum þótti vænt um mig sem og aðra sem önnuðust hann, og unni alveg sérstaklega þeim sem gáfu honum gott og mikið að borða. Hans mun vera mikið saknað. Hann var fasti í mínu lífi, hluti af heimili mínu og fjölskyldu. Lífið er fátækara án hans.
Tár mín geta ekki fært hann aftur til lífs, en hann lifði góðu lífi þessi 16 ár, át í miklu magni rækjur og tælenskan mat og fisk og hrísgrjón og pasta og nokkurn veginn allt sem hann komst í tæri við. Megi hann hvíla í friði. Ég vildi óska þess að ég hefði fengið tækifæri til að segja bless.
Greyið karlinn, svo stórkostlegur norskur skógarköttur þegar hann var upp á sitt besta, hafði heldur horast á seinni árum og var orðinn skuggi af sjálfum sér fyrir rest. Hérna er mynd af honum frá árinu 2004, þegar hann var u.þ.b. 10 ára gamall og rúmlega það í kílóum, hefðarköttur sem átti sér engan líkan í hverfinu og viðurkenndi engan sem sinn betrung.

Síðasta skiptið sem ég sá Axel á lífi var tveimur dögum áður en hann fannst látinn. Klukkan var þrjú um nóttu og ég var á leiðinni í háttinn þegar ég heyrði einkennilegt þrusk frammi í eldhúsi.
Þegar ég fór fram blasti við mér heldur furðuleg sjón: hann Axel hafði komið sér inn um gluggann eins og honum var tamt. Hann hafði síðan ýtt fram af eldhúsborðinu stórum poka af papríkuskrúfum sem ég hafði verið að gæða mér á fyrr um kvöldið og troðið hausnum djúpt ofan í til að komast í ljúffengar flögurnar á botninum. Hann var hins vegar að lenda í þónokkrum vandræðum með að koma snakkpokanum af hausnum á sér.
Þetta þótti mér svo skoplegt að ég smellti af tveimur myndum með símanum mínum áður en ég hjálpaði honum að ná pokanum af. Eftir því sem ég best veit þá eru þetta seinustu myndirnar sem voru teknar af honum áður en hann lést.
Lengi lifi Axel, þú ógleymandi konungur katta! Þú varst minn trausti félagsskapur mörg einmanaleg kvöld í kjallaranum á Öldugötu. Þú munt lifa ávallt í minningu þeirra sem elskuðu þig.
In memoriam Axel (1995-2011)
(Freyr)
Mig langar að vekja athygli á stórmerkilegum manni, Paul Robeson (1898-1976). Robeson var bandarísk fótboltastjarna, lögfræðingur, ræðuhaldari, leikari og söngvari sem barðist ötult fyrir mannréttindum. Hann var líka kommúnisti á hápunkti kalda stríðsins.
Paul Robeson var blökkumaður.
Það gerir hann að svörtum kommúnista og civil rights activista í Bandaríkjunum á árunum 1935-1960, á tímum Jim Crow laganna og McCarthy-ofsóknanna. Hreint út sagt ótrúlegt að svona maður skyldi þó deyja í rúmi sínu en ekki í einhverju Guantanamo-fangelsi. Vel þess virði að lesa Wikipediugreinina um hann
Hérna er mögnuð upptaka af honum að syngja sovétska þjóðsönginn á ensku:
King Crimson - In The Wake Of Poseidon Plato's spawn cold ivyed eyes Snare truth in bone and globe. Harlequins coin pointless games Sneer jokes in parrot's robe. Two women weep, Dame Scarlet Screen Sheds sudden theatre rain, Whilst dark in dream the Midnight Queen Knows every human pain. In air, fire, earth and water World on the scales. Air, fire, earth and water Balance of change World on the scales On the scales. Bishop's kings spin judgement's blade Scratch "Faith" on nameless graves. Harvest hags Hoard ash and sand Rack rope and chain for slaves Who fireside fear fermented words Then rear to spoil the feast; Whilst in the aisle the mad man smiles To him it matters least. Heroes hands drain stones for blood To whet the scaling knife. Magi blind with visions light Net death in dread of life. Their children kneel in Jesus till They learn the price of nail; Whilst all around our mother earth Waits balanced on the scales.
Diddi tjáir sig á Eyjunni:
Rosalega er þetta lið galið sem leggur þetta til. Þetta mun leiða til gríðalegrar hækkunar matvöru. Við erum að tala um algjörar grunnþarfir , að borða !! Þetta útspil er til þess að setja okkur endanlega í flokk með fátækustu þjóðum heims með lélegustu lífskjör...
Ég legg til að Diddi láti reyna á að búa í, tjah ... Líberíu, eða Sómalíu, og hugsi síðan vandlega aftur um þessa staðhæfingu.
Þessa dagana nota ég kreditkort til þess að greiða fyrir alla neyslu mína. Þetta hefur þann kost að ég sé hvað ég eyði peningunum í, og þann ókost að ég sé hvað ég eyði peningunum í:

(Einar Jón)
Algengustu nöfnin á Íslandi:
Jón 6037 Guðrún 5749 Sigurður 4861 Anna 4761 Guðmundur 4651 Sigríður 4347 Kristín 4042 Gunnar 3555 Margrét 3366 Ólafur 3146 Helga 3142 Sigrún 2885 Einar 2737 Ingibjörg 2667 Magnús 2634 Kristján 2420 Stefán 2271 Jóhanna 2267 Jóhann 2135 María 2017 Björn 1937 Árni 1806 Elín 1779 Bjarni 1696 Halldór 1643 Helgi 1615 Pétur 1539 Guðbjörg 1503 Kristinn 1459 Gísli 1427 Ásta 1423 Erla 1404 Ragnheiður 1402 Ragnar 1399 Þorsteinn 1361 Arnar 1351 Guðný 1332 Hildur 1329 Páll 1319 Katrín 1309 Guðjón 1281 Hulda 1279 Ólöf 1274 Lilja 1240 Sveinn 1201 Steinunn 1180 Sólveig 1140 Unnur 1139 Inga 1118 Elísabet 1116 Þóra 1105 Þórunn 1104 Auður 1102 Birgir 1100 Eva 1093 Óskar 1072 Karl 1049 Jóna 1042 Bryndís 1035 Berglind 1035 Daníel 1023 Kolbrún 1023 Davíð 1013 Ásdís 1008 Jóhannes 1005 Halldóra 985 Haukur 982 Haraldur 967 Ásgeir 956 Hrafnhildur 913 Birna 907 Íris 903 Jónína 897 Ágúst 896 Erna 892 Kjartan 885 Linda 881 Sigurjón 873 Þórður 868 Hörður 858 Guðlaug 854 Valgerður 851 Þórdís 850 Jónas 831 Sigurbjörg 829 Andri 826 Friðrik 825 Edda 809 Eiríkur 778 Hanna 749 Hilmar 747 Atli 747 Tómas 737 Sara 728 Baldur 728 Rúnar 724 Kristjana 723 Bjarki 716 Hjördís 708 Björg 708 Hafdís 699 Lára 692 Rakel 690 Sverrir 686 Aðalheiður 681 Hólmfríður 677 Guðni 674 Benedikt 674 Örn 672 Brynjar 667 drengur 666 Róbert 660 Rósa 657 Hrefna 656 Harpa 654 Ragnhildur 645 Sandra 644 Björgvin 633 stúlka 631 Karen 631 Ingólfur 623 Egill 623 Áslaug 622 Stefanía 619 Ingvar 609 Reynir 601 Ómar 598 Brynja 598 Snorri 587 Aron 584 Sigurlaug 581 Ágústa 580 Sævar 580 Garðar 579 Halla 575 Þórir 573 Laufey 566 Ingunn 554 Þórarinn 553 Rannveig 550 Þorbjörg 547 Svava 545 Elsa 540 Guðríður 539 Helena 538 Tinna 531 Soffía 524 Ása 523 Grétar 519 Vilhjálmur 514 Ingi 514 Hafsteinn 514 Tryggvi 514 Arna 511 Hjalti 508 Hlynur 504 Aðalsteinn 502 Jakob 501 Gunnlaugur 499 Sindri 496 Dagný 494 Andrea 492 Þuríður 491 Alexander 490 Kári 485 Ívar 484 Valdimar 478 Ari 471 Hermann 463 Herdís 460 Þorvaldur 459 Hjörtur 457 Hannes 453 Skúli 453 Fanney 451 Vilborg 450 Axel 450 Steinar 449 Ragna 447 Guðlaugur 441 Bragi 440 Fjóla 432 Vigdís 430 Agnes 427 Kristrún 423 Sóley 421 Lárus 421 Gunnhildur 420 Svanhildur 415 Viðar 413 Eyþór 406 Sunna 403 Bára 401 Hrönn 401 Kristófer 397 Hallgrímur 396 Þór 394 Anton 393 Svavar 386 Kristbjörg 383 Alda 383 Eyjólfur 383 Viktor 381 Arnór 375 Eyrún 373 Júlíus 372 Þórhildur 370 Matthías 369 Sólrún 368 Eggert 367 Elvar 367 Gylfi 364 Sigurbjörn 362 Óli 360 Birkir 360 Magnea 358 Sveinbjörn 357 Hákon 356 Arndís 354 Marta 351 Dóra 349 Björk 347 Guðfinna 347 Elías 346 Oddný 345 Brynhildur 344 Geir 344 Þórey 341 Sonja 341 Trausti 337 Andrés 332 Eygló 331 Nanna 328 Þröstur 325 Ólafía 325 Dagbjört 324 Ester 323 Sesselja 323 Valdís 323 Oddur 323 Valur 323 Pálmi 321 Hafþór 321 Baldvin 319 Heiða 319 Gyða 318 Rebekka 316 Steingrímur 316 Guðmunda 315 Heiðrún 312 Heiðar 310 Heimir 309 Emil 307 Gréta 305 Þórhallur 303 Sigurgeir 300 Thelma 299 Agnar 297 Jens 296 Gerður 295 Bergþóra 295 Þorgerður 294 Aldís 293 Sæmundur 292 Fríða 288 Aðalbjörg 287 Jenný 287 Finnur 285 Sigfús 278 Leifur 276 Selma 276 Lovísa 274 Elva 273 Eydís 273 Alexandra 271 Hjálmar 269 Daði 268 Hugrún 266 Matthildur 263 Vignir 260 Birgitta 259 Pálína 259 Svala 258 Una 257 Brynjólfur 256 Þorgeir 255 Fannar 254 Ásmundur 254 Þorkell 254 Gestur 250 Hreinn 246 Valgeir 245 Ísak 245 Elínborg 244 Elísa 244 Júlía 243 Stella 242 Nína 240 Erlendur 239 Ásgerður 239 Smári 238 Bergur 233 Svandís 233 Árný 231 Olga 230 Hans 229 Erlingur 229 Albert 228 Ingveldur 227 Ármann 227 Alma 227 Ingimar 226 Freyja 225 Ægir 221 Klara 220 Signý 219 Dagur 219 Silja 218 Aníta 218 Kolbeinn 218 Ásthildur 217 Ellen 217 Rut 216 Jórunn 215 Hrafn 214 Birta 214 Sjöfn 213 Steinþór 208 Sif 207 Marteinn 207 Dagmar 207 Sigurveig 206 Finnbogi 204 Sigmar 201 Sigmundur 200 Ævar 199 Emilía 199 Rafn 199 Unnar 198 Hinrik 197 Sigurrós 196 Símon 193 Svanhvít 191 Óðinn 189 Ingvi 188 Ástríður 188 Svanur 188 Úlfar 185 Sylvía 184 Bjarney 184 Maria 184 Sigurborg 182 Þorleifur 181 Guðbjörn 181 Grímur 179 Sölvi 178 Bergljót 175 Sæunn 174 Georg 173 Lúðvík 172 Telma 172 Konráð 171 Vigfús 171 Þráinn 171 Ósk 170 Þorbjörn 169 Vala 169 Elfa 169 Rögnvaldur 169 Orri 168 Torfi 168 Ólína 167 Sigþór 167 Bergþór 165 Arnþór 164 Steindór 164 Sveinbjörg 163 Sturla 163 Díana 162 Viktoría 161 Steinn 161 Júlíana 160 Eiður 159 Hallfríður 157 Böðvar 156 Esther 156 Markús 155 Alfreð 155 Auðunn 155 Katla 154 Drífa 154 Jökull 152 Gróa 152 Karólína 150 Ingimundur 150 Hrafnkell 150 Guðbjartur 149 John 148 Guðbrandur 148 Regína 147 Erling 147 Óttar 147 Víðir 146 Freyr 145 Skarphéðinn 143 Marinó 142 Málfríður 141 Höskuldur 140 Hafliði 140 Hreiðar 140 Hjörleifur 140 Ásrún 138 Ásbjörn 138 Sigtryggur 137 Örvar 136 Michael 136 Eysteinn 136 Samúel 135 Sunneva 135 Logi 134 Hallur 134 Jakobína 133 Mikael 133 Karitas 132 Petra 132 Elmar 131 Lena 130 Adam 130 Níels 129 Álfheiður 129 Ellert 128 Emma 128 Hekla 127 Anne 127 Hrund 127 Borghildur 126 Lísa 126 Iðunn 125 Sædís 125 Ingigerður 125 Snæbjörn 125 Heiðdís 124 Ottó 124 Gústaf 123 Benjamín 121 Styrmir 121 Indriði 120 Anita 118 Sigurlína 117 Hrannar 117 Ástrós 117 Sigvaldi 115 Ásgrímur 115 Bylgja 115 Sigurþór 114 Már 114 Runólfur 114 Valborg 113 Hildigunnur 112 Loftur 112 Hlín 112 Jan 111 Hafrún 111 Snædís 110 David 110 Theódór 110 Barbara 110 Bogi 110 Þorlákur 109 Högni 109 Þorgrímur 108 Arnheiður 108 Þórólfur 107 Thomas 106 Friðjón 106 Tanja 106 Súsanna 105 Hlíf 105 Helen 104 Héðinn 104 Þorvarður 104 Ársæll 103 Svanfríður 102 Gígja 102 Magdalena 100
(Sindri)
