Results for 2011-04

14.4.2011 kl. 19:13

Ég keyrði kveríu í Vaktaranum með lykilorðið "Icesave" til þess að sjá umræðuna upp á síðkastið.:

clara icesave
14.4.2011 kl. 14:59

Af vef LÍÚ:

Kvótakerfið er merkilegasta framtak Íslands í skipulagsmálum og að innkalla og endurselja kvótann er í raun ómerkilegur þjófnaður

Fyndið, rosalega er ég naív, ég hélt nefnilega að það að gefa kvótann í denn hefði verið eitt stórtækasta rán í Íslandssögunni.

12.4.2011 kl. 01:40

oreidumenn
11.4.2011 kl. 18:25

Jæja, nú eru loksins komnar tölur sem staðfesta það sem allir vissu: að stjórn Geirs Haarde beilaði út fjármagnseigendur, langríkasta fólkið í samfélaginu, á kostnað komandi kynslóða.

Í stuttu máli:

Af töflunni ... má ráða að 4,7% einstaklinga, eða 8.799 af 188.512, eigi 56%, eða meira en helming, allra innstæðna, þ.e. 364 ma.kr. af 645 ma.kr.

Þá má líka reikna það út að 4.627 einstaklingar eigi 284 ma.kr. á bankainnstæðum. Hlutfallslega mætti því segja að 2,5% einstaklinga eigi 44% af öllum bankainnstæðum.

Þetta er klárlega stærsti tilflutningur eigna í Íslandssögunni. Og eignaflutningur var frá mér og öllum þeim sem eiga þorrann af skattævi sinni eftir ólifað, til auðugustu manna á Íslandi. Hinn almenni borgari á enga peninga inni á bankareikningi. Sparnaður hans er í lífeyrissjóðum og fasteignum.

"Never attribute to malice that which can be adequately explained by incompetence" sagði einhver [uppfærsla: Mögulega Robert Heinlein, ótrúlegt en satt].

En hér er klárlega malice á ferðinni. Þetta er allavega ekki "adequately explained by incompetence." Það hefði verið ósköp einfalt að setja þak á innistæðutrygginguna upp á nokkrar millljónir. Venjulegt, heiðarlegt, vinnandi fólk á ekkert meira en það inni á bankabók.

capitalism
9.4.2011 kl. 06:14
7.4.2011 kl. 18:05

Eins og Dark of the Sun er nú mediocre mynd, þá er inngangsstefið eftir Jacques Loussier einstaklega flott:

7.4.2011 kl. 17:59

Úr leiðara á sjötta mest lesna vef landsins:

Það er oft sagt að karlmenn hugsi rosa mikið með klofinu og að konur hugsi með heilanum. Þetta er bara ekki alveg rétt, í rauninni hugsa bæði kynin með klofinu og heilanum. Allt í lagi, karlmenn eiga það kannski til að hugsa oftar með klofinu ef svo má orða það en eru þeir verri? Uhh nei!

Ég held að ég hafi sjaldan rekist á jafn sálfræðilega upplýsta og innsæisríka grein um mismun kynjanna.

7.4.2011 kl. 17:40

Opinions are like assholes. Everyone's got one, and they all stink.

7.4.2011 kl. 00:57

Ógeðslega flott framhlið á hljómplötu.

cdcover

Þekkir hana einhver?

1.4.2011 kl. 15:07

Google Easter Egg:

Prufið að leita að "Helvetica" í Google.