Results for 2010-05
Það þurfti sagnfræðing til að benda á þetta:
The issue which has swept down the centuries and which will have to be fought sooner or later is the people versus the banks. -- Lord Acton (18341902)
Hefur aldrei verið jafn augljóslega satt.
When a government is dependent upon bankers for money, they and not the leaders of the government control the situation, since the hand that gives is above the hand that takes. Money has no motherland; financiers are without patriotism and without decency; their sole object is gain. -- Napoleon Bonaparte (17691821)
Og svo loksins:
It is well enough that people of the nation do not understand our banking and monetary system, for if they did, I believe there would be a revolution before tomorrow morning. -- Henry Ford (18631947)
(Eiki)
From: Gísli JónassonTo: Sveinbjorn Thordarson Date: Wed, 26 May 2010 11:21:45 +0000 Subject: RE: Flash í stað WMV Sæll. Þessi mál eru einmitt í skoðun. Takk fyrir ábendinguna. Kv. Gísli Jónasson -----Original Message----- From: Sveinbjorn Thordarson [mailto:sveinbjornt@******] Sent: 24. maí 2010 11:48 To: Webmaster Subject: Flash í stað WMV Sæl(l), Mig langar til þess að stinga upp á að RÚV hætti að nota þessa lélegu Windows Media tækni og skipti straumum á ruv.is vefnum yfir í Flash spilara, sem virkar almennilega á öllum stýrikerfum (þ.m.t. Windows, Mac OS X og Linux) og er að öllu leyti betri tækni. Flash er í dag staðallinn fyrir meira og minna allt vídeó á netinu -- af góðri ástæðu. RÚV vefurinn myndi batna til muna. Bkv. Sveinbjörn
(Sveinbjörn)
Nýlega uppgötvaði ég afburðagóðan gamlan Delta blús söngvara og gítarleikara, Skip James.
Mæli sérstaklega með plötunni Today frá árinu 1965.
Jæja, þá er hún komin út, bókin um frjálshyggjuna sem ég á stuttan kafla í.
Hún ber heitið Eilífðarvélin: Uppgjör við nýfrjálshyggjuna. Kolbeinn Stefánsson ritstýrir.
Kaflinn minn fjallar stuttlega um hugmyndasögulegar rætur frjálshyggjunar, en ég rek þær aftur til einstaklingshyggjunnar í stjórnspeki Tómasar Hobbes og svo til bjartsýnisheimspeki Upplýsingarinnar, þ.e.a.s. ást hinna ýmsu upplýsingarspekinga á alhæfum, axíómatískum lausnum í stjórnspeki á grundvelli mannlegrar skynsemi.
Hérna er smá umfjöllun um bókina á Smugunni.
Kistan.is birtir síðan útdrátt úr fyrsta kaflanum (sem Kolbeinn skrifaði).
Bókina má panta á vef Háskólaútgáfunnar, en annars skilst mér að hún komi í Bóksölu stúdenta innan skamms.
Uppfærsla: Ég henti inn á síðuna stuttum útdrætti úr kaflanum mínum.
(Nafnlaus gunga)
Maður hefur þessa ímynd af Áströlum sem afslöppuðu, tönuðu og easy-going fólki, en þeir eru algjörir nasistar þegar það kemur að ritskoðun og eftirliti. Það er svartur listi af vefsíðum sem eru óaðgengilegar frá Ástralíu, bjúrókratar og pólitíkusar ákveða hvaða síður eru á listanum og enn fremur er listinn ekki opinber og aðgengilegur almenningi. Ofan á þetta hefur tollurinn þar nú heimild til að leita að klámi á fartölvum þeirra sem heimsækja landið.
Mig langar til þess að vekja athygli á eftirfarandi heimildamyndum um heimspeki sem ég setti inn á YouTube um daginn eftir að hafa sótt þær gegnum háskólanetið hérna í Edinborg.
- Logic Lane: A Philosophical Retrospective
- "I'm Going To Tamper With Your Beliefs A Little"
- Language and Creativity
- Appearance and Reality
- The Idea of Freedom
- You might just as well say 'I see what I eat' is the same thing as 'I eat what I see'
Þær eru gerðar af Michael Chanan og samanstanda af viðtölum við ýmsa heimsþekkta heimspekinga frá fyrri hluta 20. aldar, þ.á.m. Isaiah Berlin, Stuart Hampshire, Gilbert Ryle, Iris Murdoch, David Pears og Alfred Ayer.
Hann Gunni Hrafn er snillingur, takið sérstaklega eftir síðustu setningunni í þessari frétt.
(Gunni)
Hérna er áhugaverður þáttur á SBS Dateline í Ástralíu sem fjallar um Julian Assange og WikiLeaks. Þarna er m.a. fjallað um bakgrunn Assange, um hlutverk WikiLeaks í að koma út lánabók Kaupþings, og síðan er viðtal við Boga Ágústsson fréttamann um tilraunir til þess að þagga niður í RÚV.
(Sveinbjörn)
Kjarnorkuvopn hafa nýlega verið mikið í kastljósinu í hinum engilsaxneska heimi, bæði vegna kjarnorkuniðurskurðar hjá Obama ríkisstjórninni í Bandaríkjunum og svo núna í kosningamálum stjórnmálaflokka í Bretlandi. Frjálslyndir demókratar sögðust t.d. ætla að hætta við 100 milljarða punda fjárfestingu í endurnýjun á kjarnorkukafbátum og kjarnaoddum, enda væri slíkum peningum betur varið í smjör heldur en byssur á þessum síðustu og verstu tímum.
Í kjölfarið fór ég aðeins að lesa mig til í þeim mikla litteratúr sem til er um kjarnavopn, þ.á.m. um rökin bak við það að vera kjarnorkuveldi og um svokölluðu "deterrence" áhrifin, þá kenningu að kjarnavopn komi í veg fyrir stríð. Ég rakst fyrir vikið á áhugaverða grein sem færir rök fyrir því að kjarnorkusprengjan hafi alls ekki verið lykilþáttur í að binda lok á stríðið milli Bandaríkjanna og Japans í síðari heimsstyrjöld, heldur hafi hún verið blóraböggull japanskra ráðamanna til þess að beina athyglinni frá þeirri staðreynd að herstjórn þeirra og stríðsrekstur hefði brugðist.
(Brynjar)
Eftir að hafa horft á viðtalið við Guðlaug Þór í Kastljósinu í kvöld fékk ég frábæra hugmynd: Einhver ætti að setja upp vefsíðu þar sem hvert einasta viðtal við pólitíkusa í Kastljósinu er analýserað, og allar rökvillurnar, smokescreenarnir, defleksjónirnar, retórísku brellurnar o.s.fv. væru útlistaðar og greindar. Þetta gæti orðið hin besta skemmtun.
(Eiki)



