Results for 2009-04

29.4.2009 kl. 14:54

ride the walrus

28.4.2009 kl. 03:28

Jókst frjósemin í góðærinu?

Fannst þetta sérstaklega merkilegt:

Over half of the children born in Iceland in 2007 were born out of wedlock. Most of them, however, were born to parents in consensual union (49.3%), but 14.4% were born to parents that were not living together. Just over a third (36.2%) was born in wedlock.


27.4.2009 kl. 21:20

Jæja, þá eru Bretarnir búnir að fá í gegn nasistalög svipuð þeim sem íslenska ríkið setti á fyrir nokkrum árum.

Stórmerkilegt að landið sem gat af sér líberalisma skuli nú vera eitt helsta stórabróðursríkið í heiminum: CCTV myndavélar alls staðar, uppbygging á genetískum og bíómetrískum gagnagrunni, geymsla á gögnum um netnotkun borgara og glæsilegar tilraunir til þess að afnema habeas corpus.

26.4.2009 kl. 21:08

Í þynnkunni í dag horfði ég aftur á kvikmynd sem hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér frá því að ég fyrst sá hana 10 ára gamall. Ég er auðvitað að tala um Paul Verhoeven meistarastykkið Total Recall, sennilega bestu mynd Arnolds Schwarzeneggers.

Ég var alveg búinn að gleyma því hversu frábær þessi mynd er. Hún er brilljant, sennilega ein besta sci-fi aksjón mynd allra tíma.

Hún kynnti mig síðan líka fyrir enskum orðum eins og "paranoid delusion" og "lobotomised."

total recall
22.4.2009 kl. 19:03

Í Bretlandi tekur 5 daga að breyta heimilisfanginu sínu hjá bankanum.

Í Bretlandi tekur 2-3 daga að kassja einum tjekka.

Í Bretlandi tekur 2 daga að flytja peninga frá einum reikningi yfir á annan í öðrum banka, og kostar nokkur pund.

Í Bretlandi eru netbankarnir pakkaðir af auglýsingum.

Í Bretlandi er ekki hægt að borga reikningana sína á netinu.

Og síðan kvörtum við yfir bönkunum okkar. Þeir gáfu okkur allavega almennilega þjónustu þótt allt hafi farið á hausinn.

16.4.2009 kl. 18:17
vending machine

Getur einhver útskýrt fyrir mér af hverju maður fær alltaf bara 16 sígarettur í sígarettupökkum frá sjálfsölum?

Þetta er ótrúlega asnalegt. Pakkarnir eru nákvæmlega jafn stórir og venjulegir 20-sígarettna pakkar, nema að það eru 16 í þeim, og fylla þ.a.l. ekki út í pakkann (og kosta auðvitað meira). Maður hefði haldið að það væri tæpast þess virði að vera með sérstaka framleiðslulínu af sígarettupökkum fyrir sjálfsalana eina.

VIÐBÓT: Skemmtileg South Park klippa um fjármálamarkaðinn blessaðan.

10.4.2009 kl. 15:05

Já, þetta er svo sannarlega elsta atvinnugreinin...

8.4.2009 kl. 00:22

Þetta hefur alltaf verið ein uppáhalds Yes Prime Minister senan mín -- og ég er hér um bil viss um að innblásturinn fyrir *austurríska* vísindaráðgjafanum hafi verið vísindaheimspekingurinn Karl Popper.

2.4.2009 kl. 15:55

Djöfull er þetta leiðinlegur Tetris leikur.

1.4.2009 kl. 16:22

Mér finnst svolítið fyndið að targeted profile-based auglýsingarnar á fésbókinni birta hjá mér helling af auglýsingum fyrir stefnumótavefsíðuna Ivory Towers en þeir kynna sig þar sem intelligent UK friendship, dating and matchmaking for graduates of all eras.

Ivory towers indeed.

1.4.2009 kl. 16:00

Ég man að eitt sinn þegar ég var ungur strákur tók ég eftir myndbandsspólu uppi í hillu á vídeóleigunni á Hofsvallagötunni sem hét Maniac Cop. Ég leigði hana nú aldrei en ákvað á staðnum að þessi kvikmynd hefði bestu hugsanlega tag-línu í sögu kvikmynda:

You have the right to remain silent... Forever!


maniac cop