Results for 2008-10
Þetta er klárlega besta hugmynd að kvikmynd sem ég hef nokkru sinni lesið:
On 22 Oct 2008, at 00:32, esimmons205@gmail.com wrote:
I just read your article, and I noticed your discussion of the libertarian argument against abortion seemed to be lacking. There are multiple libertarian arguments against abortion which you did not address.
For example:
Producing a child through consensual sex is akin to abducting someone and tying them up in your basement. In the case of the abduction, the abductee is there in your basement dependent upon you for survival by no act or omission of his own. In the case of pregnancy, the child is likewise there in the mother's womb, dependent upon her for survival, by no act or omission of its own.
If you, the abductor, were to stop feeding the man in your basement or subsequently to evict him from your property, still tied up or otherwise handicapped so that he did not have the faculties necessary to fend for himself, you would be committing an act of murder. Likewise with abortion.
This view is perfectly consistent with libertarianism, assuming the libertarian is conditionally pro-life and thus makes exceptions for cases of rape.
Tell me where I'm wrong.
Hello, Mr. Simmons
Thanks for your email. Arguing by analogy is always a dangerous
thing, and I think in the instance you cite is flawed. Allow me to
explain:
In the case when you abduct someone and lock him in your basement, you
have a clear and conscious act of coercion on behalf of the abductor
against the abductee. Agency is quite clear and unambiguous. This does not hold for impregnation, even in the case of consensual
sex. A better analogy would be if someone were to accidentally,
through a technical flaw, get teleported into your basement. In such
a case I would argue that one is well within one's libertarian rights
to expunge the person from the premises -- *even* if one was the
person who operated the teleportation device in the first place. But
as I say, arguing by analogy is dangerous ground.
I am not a libertarian, and I think libertarianism is (no pun
intended) an abortive political ideology bereft of sound intellectual
and empirical foundations. The very way in which libertarians discuss
abortion is a testament to this. The whole abortion debate is
obviously about personhood, not property rights and initiation of force.
On a personal note, I'm very much in *favour* of abortion. The world has too many human beings.
Best regards,
Sveinbjorn Thordarson
Skemmtilega nokk, þá hef ég ekki enn fengið svar við þessu.
(Arnaldur)
Þetta er alveg brjálað. Ég þarf að fara að safna...
Svei mér þá ef "the Right Honourable Edward Heath" hafi ekki skilaboð til íslensku þjóðarinnar:
Djöfull er þetta brjáluð hugmynd. Ég ætla totally að bakka upp gögnin mín í þessu sniði -- einungis 400 þúsund blaðsíður. Mind you, paper has a proven track record, sem er meira en maður getur sagt um magnetic media...
(Doddi)
Ótrúlegt en satt, þá er ég ekki tala um Ísland. Ég er að tala um Bretland. Í dag eyddi ég 45 mínútum í símanum að reyna að fá opnaða símalínuna frá British Telecom hérna í íbúðinni. Hef aldrei fengið svona lélega þjónustu. Ekki bara kostar það himinháar upphæði, og einungis einn þjónustuaðili til boða, heldur tekur það *ellefu virka daga* að kveikja á símalínunni. Jahá, 11 virka daga. Síðan er vefsiðan þeirra ömurleg, og þar engar upplýsingar að finna. BT færi á hausinn á viku í alvöru samkeppnisumhverfi.
(Sveinbjörn)
Ríkið farið að skammta gjaldeyrinn alveg eins og í gamla daga. Nú hlýtur að hlakka í bjúrókrötunum...
Tímabundin temprun á útflæði gjaldeyris
Til: innlánsstofnana
Frá: Seðlabanka Íslands
Vegna óvenjulegra aðstæðna er eftirfarandi upplýsingum og tilmælum beint til innlánsstofnana.
1. Búið er að grípa til ráðstafana til að draga úr erlendum úttektarheimildum á kreditkortum. Ekki er talin ástæða til að takmarka ferðamannagjaldeyri umfram það sem bankarnir sjálfir eru að gera vegna skorts á seðlum hjá þeim sjálfum. Eðlilegt er að bankar geri þá kröfu að framvísað sé farseðli eða ígildi hans og að viðkomandi sé í viðskiptum við banka/útibú.
2. Setja þarf upp forgangsafgreiðslu á gjaldeyri vegna vöru- og þjónustuinnflutnings. Ekki er æskilegt að eyða tíma í að eltast við einstaka vöruflokka, heldur einbeita kröftum að því að fylgjast með hærri fjárhæðum. Þar sem starfsmenn bankaútibúa þekkja best til sinna viðskiptavina væri eðlilegt að þeir hefðu með höndum mat á því hvort beiðnir um gjaldeyriskaup vegna innflutnings eru vegna nauðsynlegs innflutnings á vöru og þjónustu. Yfirmenn ábyrgðust sölu gjaldeyrisins og gætu leitað til Seðlabankans til að fá úrskurð ef vafi léki á nauðsyn. Ef óskað er eftir kaupum á gjaldeyri frá Seðlabankanum vegna innflutnings vöru eða þjónustu skal senda tölvuskeyti þar að lútandi á tölvupóstfang: gjaldeyrisumsokn@sedlabanki.is. Þar verða beiðnir metnar og afgreiddar eins hratt og unnt er.
3. Í forgangsflokkum gætu t.d. verið eftirfarandi liðir, matvara, lyf, olíuvörur og opinber kostnaður erlendis.
4. Forðast ætti að nýta gjaldeyri sem kemur inn í bankana, til fjármálatengdra gjaldeyrisviðskipta af neinu tagi.
5. Þeir bankar sem njóta fyrirgreiðslu Seðlabankans þurfa að gera sundurliðaða grein fyrir öllum gjaldeyrisviðskiptum sínum í lok hvers dags.
(Arnaldur)
Frumvarpið sem lagt verður fyrir Alþingi í dag felur í sér að íslenska fjármálakerfið fari undir stjórn ríkisvaldsins. Seðlabanka og Fjármálaeftirlitinu verða veittar mjög ítarlegar heimildir til að grípa inn í stjórn og starfsemi fjármálastofnana. Hægt verður að yfirtaka fjármálafyrritæki eða stofna ný, boða til hluthafafunda og takmarka heimildir stjórna fjármálafyrirtækjanna.
Ég var rétt í þessu að horfa á Geir lýsa nýja fjármálafrumvarpinu í beinni gegnum netið. Svona endar nýfrjálshyggjusvallveislan á Íslandi -- á því að ríkið eykur vald sitt gríðarlega á fjármálamörkuðum til þess að koma í veg fyrir að hagkerfið hrynji, og það eftir að lítil elíta af bankastjórum og fjárglæframönnum hafa hagnast um hundruði milljóna við kaup og sölu fyrirtækja sín á milli. Í stefnubreytingu sem er klárlega afturkippur til 8. áratugsins fær fjármálaráðherra nú varanlegt og umfangsmikið vald til þess að taka yfir og skipta sér af rekstri íslenskra fyrirtækja.
Þetta er ekki beinlínis stoltur dagur fyrir Davíð Oddsson og fylgismenn hans. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru í raun drastísk afneitun á laissez-faire stefnunni heittrúuðu sem dunið hefur yfir landann undanfarin áratug. Hönd markaðarins reyndist í þetta skipti ekki bara með öllu ósýnileg heldur einnig óáþreifanleg -- eintóm hughverfing markaðspostula og frjálshyggjumanna sem byggðu hugmyndir sínar um skynsemi ökónómískra agenta á vansköpuðum og ófrægðum tilgátum um mannlegt eðli.
(Þórir Hrafn)

Allt hérna í Bretlandi kostar mig 85% meira en það gerði fyrir ári síðan.
(Halldór Eldjárn)
Flottur vefur þar sem hægt er að skoða fjárlögin fyrir næsta ár í grafísku formi.
(Arnaldur)
Ég var að kenna fyrsta tímann minn í dag í Early Modern European History, og ég held svei mér þá að ég fíli það bara helvíti vel að kenna. Yfirlit yfir kúrsinn sem ég kenni er hérna.
(Sveinbjorn)
