Results for 2008-09

29.9.2008 kl. 16:58

Ég og Nanna vorum að ganga í Greyfriars kirkjugarðinum í gamla bæ Edinborgar þegar við rákumst á eftirfarandi legstein. Þetta er alveg fáránlega gott -- "superior understanding, intelligence and worth". Ég vil fá nákvæmlega eins texta á minn legstein:

legsteinninn
29.9.2008 kl. 11:41

Bailout

Their profits are their profits.
Their losses are our losses.
Neoliberal capitalism is a beautiful thing.

25.9.2008 kl. 16:42

WTF? Og Oliver Stone leikstýrir. Er ekki fullsnemmt að kvikmynda þetta?

Ég er alveg öskureiður. Ég fór skelþunnur í (bresku) bankann minn fyrr í dag til þess að greiða skólagjöld og lenti í óskilvirkustu, lélegustu, mestu skítahallærisdraslþjónustu sem ég hef nokkru sinni upplifað. Ég vildi flytja 3166 pund yfir á reikning Edinborgarháskóla og var með allar upplýsingar vandlega skrifaðar niður á blað. Ég bjóst ekki við að þetta yrði neitt vandamál. Eftir að hafa beðið í langri biðröð í bankanum fékk ég loksins afgreiðslu. Ég útskýrði fyrir afgreiðsludömunni að ég vildi millifæra þessa upphæð, og rétti henni blað með öllum hugsanlegum upplýsingum. Hún sagði mér að "money transfers for the day are over" (klukkan var 14:30) og að greiðslan færi í gegn daginn eftir. "OK, that's fine." Síðan sagði hún mér að millifærsla myndi kosta 22 pund, eða um 3800 krónur á núverandi gengi. Þetta þótti mér alveg með ólíkindum blóðugt. Ég spurði hvort það væri nú ekki einhver ódýrari leið. Hún sagði mér að ég gæti bara tekið út upphæðina í reiðufé og gengið yfir í Bank of Scotland skammt frá og borgað inn á reikninginn beint. Mér þótti þetta afskaplega asnalegt -- 21sta öldin, og menn eru að ganga á milli með háar upphæðir í reiðufé?

Ég lét mig þó hafa það, tók þessa miklu upphæð og fór yfir í Royal Bank of Scotland. Þar beið ég í annari biðröð. Þegar ég fékk afgreiðslu og sagðist vilja leggja inn þennan pening þá var mér sagt að þetta væri "low cash" útibú sem gæti bara tekið við upphæðum að 1200 pundum og fékk stuttan fyrirlestur um bjúrókrasíu Royal Bank of Scotland, og hvernig útibú skiptust í "high cash" og "low cash" útibú. Ég varð hundfúll og spurðist fyrir um hvar ég gæti þá fundið "high cash" útibú. Ég gekk síðan yfir í "high cash" útibúið, frekar taugaveiklaður yfir því að vera með svona mikinn pening á mér. Þar beið ég í annari langri röð. Þegar ég fékk loksins afgreiðslu þá sagði ég að það þyrfti að "quote the student reference number in the deposit" eins og stóð í fyrirmælum frá skólanum. Afgreiðsludaman útskýrði fyrir mér að það væri ekki hægt að quote-a reference númer í beinum reiðufésinnborgunum. Nú var ég orðinn mjög pirraður.

Ég fór bálreiður aftur yfir í bankann minn, NatWest, og sagði að ég vildi bara borga þessi andskotans 22 pund og framkvæma millifærslu sem færi í gegn daginn eftir. Afgreiðsludaman bað mig þá um alls konar furðuleg númer sem ég hafði aldrei heyrt um og fór að útskýra fyrir mér hvernig hin og þessi númer virkuðu í innanhúsgagnagrunni bankans. Ég sagði henni "Lady, I don't know anything about banking or banks, and I'd like to keep it that way." Þá var ég beðinn um vegabréf, því það er vist þannig að þeir þurfa að ljósrita vegabréfið manns þegar upphæð yfir 3000 pund er færð á milli. Ég hafði auðvitað ekki vegabréfið á mér.

Á þessu stigi málsins þá tapaði ég mér alveg og útskýrði fyrir dömunni að þetta væri nú ekki kjarnorkuvísindi -- að ég vildi nú bara flytja pening af reikningi A yfir á reikning B, og hvernig í andskotanum þetta gæti verið svona dýrt og flókið allt saman? "Please remain calm, sir. I don't make the rules."

Jahá. Tvær klukkustundir af frústrerandi bjúrókrasíu og kjaftæði, og mér tókst ekki einu sinni að framkvæma eina skitna millifærslu. Þessir bresku bankar eiga það fyllilega skilið að fara beinustu leiðina á hausinn. Þeir bjóða upp á síðustu sort af skítaþjónustu, pappírsvinnu, formsatriðum og óendanlegri frústrasjón. Það má margt illt um íslenska banka segja, en miðað við upplifanir mínar í Bretlandi eru þeir æðislegir.

Þetta er ekki fyrsta martröðin sem ég lendi í með breska banka.

Á svipuðum nótum, þá er það alveg með ólíkindum hversu mikil pappírsvinna og bjúrókrasía fylgir einföldustu hlutunum hérna í Bretlandi. Ég eyddi 45 mínútum í að tala við British Telecom og fékk ekki einu sinni símalínu. Það er endalaus straumur af pappírum og eyðublöðum fyrir allt milli himins og jarðar. Við Íslendingar höfum það býsna gott heima, held ég...

23.9.2008 kl. 18:56

Jæja, þá fer kennsla bráðum að byrja. Ég verð tutor í kúrsinum European History I, og kenni Early Modern European History (1500-1800) fram að áramótum. Er að vinna að því að koma upp leslista o.fl. Ætla að hafa áherslurnar afar hugmyndasögulegar og ætla að láta krakkana byrja á því að lesa Prinsinn eftir Machiavelli.

Ég kenni 3 tíma á viku, og nemendurnir verða flestir u.þ.b. 18-19 ára. Hins vegar verða einhverjir e.t.v. 17 ára, og fyrir vikið hef ég skemmtilega nokk þurft að veita Edinborgarháskóla leyfi til þess að framkvæma svokallaðan 'background check' til þess að ganga úr skugga um að ég sé 'suitable for teaching minors.' Það finnst mér mjög fyndið.

21.9.2008 kl. 14:55

Ég held að ég fái mér bara svona eyju og leggist í helgan stein...

Vá, Conservapedia er með mynd af Adolf Hitler efst í greininni um þróunarkenninguna.

Djöfull er gengið á krónunni að fara hrikalega með mig fjárhagslega. 164 krónur á pundið í dag. Eins gott að ég er að fara að fá greitt í pundum frá skólanum.

Ég er annars búinn að redda mér íbúð í Edinborg, og leigi s.s. pleis á Drummond Street í hjarta borgarinnar ásamt henni Nönnu Teitsdóttur. Þetta er lítið og hljóðbært pleis á tveimur hæðum, en kosý og með mikilli birtu. Hér koma nokkrar myndir af íbúðinni:

















11.9.2008 kl. 16:06

The Browser User-Agent String: A History.

10.9.2008 kl. 15:01