Results for 2005-06
Reagan merkilegasti Bandaríkjamaðurinn?
Jóhannes Páll páfi í dýrlingatölu?
Eiturlyfjaframleiðsla eykst stöðugt?
Ísraelar gera loftárásir á Líbanon?
Bandaríkjastjórn hyggst framleiða plútoníum á ný?
Hiti andrúmslofts hækkar meira en reiknað var með?
Duran Duran meðlimir ekki þreyttir?
Kannski les ég ekki fréttirnar nógu mikið. Eftir að hafa lesið yfir þetta líður mér bara eins og allt sé að fara til fjandans, og það óðfluga! Kannski ættum við bara að biðja fyrir því að apaforsetin vestra ýti sem fyrst á hnappinn og bindi enda á þennan andskota...
(Sindri)
"Those who hold power [...] are likely to belong, in the main, to the ambitious executive type which in all ages has possessed itself of the government of nations. And this type has never shown itself tolerant of opposition or friendly to freedom."
Bertrand Russell, 'Roads to Freedom' (1917)
Þetta er alveg ótrúlega, ótrúlega satt...
Síðasta færslan um iPod Linux....ég lofa!
Eftir mikið af blóði, tárum og svita hef ég sett upp þróunarumhverfi á vélinni minni til að auðvelda vinnu á hugbúnaði fyrir iPod Linux -- ég keyri bara X11 gluggaumhverfið ofan á Aqua gluggaumhverfi Mac OS X, og tengi Microwindows (það sem iPod Linux notar) við X11 serverinn. Þannig get ég prufað hugbúnaðinn minn á Mac OS X í stað þess að þurfa að hlaða hann yfir á iPodinn og endurræsa honum í Linux í hvert skipti sem ég þarf að athuga breytingarnar mínar. Hérna eru screenshots:
Þetta er frekar fyndið teiknað svona á tölvuskjá en ekki litla mónókróm iPod skjánum.
Já, síðan komst ég að því að það er til text editor fyrir iPod Linux -- hann heitir viP -- mér hefur ekki tekist að fá hann til að virka almennilega ennþá, en af því sem ég hef lesið um hann þá tekur *afar* langan tíma að skrifa nokkurn skapaðan hlut...
(Sveinbjörn)
Fyrsta grafíska forritið mitt fyrir iPod Linux
Jæja, þá er maður loksins búinn að smíða grafískt forrit fyrir iPod Linux -- þetta hlýtur að teljast ágætis notkun á helgi, er það ekki?. Það heitir Piano, og leyfir manni að spila á píanó út um iPodinn sinn. Viðmótið er enn frekar frumstætt, en mér tókst að spila "Gamla Nóa" út í gegnum græjurnar hjá mér. Þetta er gert með því að tengja ákveðið WAV skjal við hverja nótu, sem er auðvitað mjög óskilvirkt. Ég ætla að breyta því þannig að WAV skrárnar hlaðist inn í minni á meðan forritið er virkt. Hvað um það, þá kemur hér til hliðar mynd af því "in action". Smellið til að fá stærri mynd.
Síðan hef ég verið að fikta og skoða Podzilla aðeins meira, og svo virðist sem þetta project hafi fjöldann allan af fídusum sem ég vissi ekki af, þ.m.t. myndaskoðara...
Síðan er líka text viewer sem leyfir manni að skoða textaskrár á harða diskinum. Hins vegar er enginn text editor -- gæti verið afar gagnlegt að geta tekið niður nótur á iPod -- þetta er eitthvað sem ég hef hugsað mér að bæta úr og senda síðan iPodlinux projectinu breytingarnar mínar.
Og já, nú er nóg komið af nördun. Ég lofa að pósta ekki fleiri fréttum um raunir mínar með Linux á iPodinum.
iPod Linux notendaviðmót og forritun
Ég er búinn að fikta aðeins meira með Linux á iPodinum mínum, og mér hefur tekist að fá Podzilla notendaviðmótið til að virka. Það fylgir fjöldinn alllur af sniðugum forritum með því. Hér sjást myndir -- smellið til að fá þær stærri
Podzilla viðmótið |
Upptökur |
Reiknivél |
3D kubbur |
Matrix effect |
Mandelbrot útreikningar |
Ég kompælaði þessu öllu saman sjálfur notandi sérstaka útgáfu af gcc fyrir embedded ARM kubba án MMU. Nú hef ég hugsað mér að byrja að forrita stöff fyrir iPodinn minn. Hér koma nokkrar myndir, m.a. af fyrsta iPod forritinu mínu og outputinu úr því...
Skjalavafri |
Forritið mitt á disknum |
Úje, forritið í gangi. |
(Sveinbjörn)
Linux á iPod
Jæja, ég er núna officially over-the-top tölvunörd: Ég er búinn að setja inn og ræsa Linux á iPodinum mínum. Þetta tók svolitla vinnu -- þetta er breytt útgáfa af ucLinux fyrir ARM örgjörva án MMU, sérstaklega breytt þannig að kernelinn keyrist í firmware-inu á iPodinum. Þetta er collaborative SourceForge project og nánari upplýsingar fyrir aðra djarfa nörda má finna hér.
Því miður hefur mér ekki tekist að fá Podzilla, notendaviðmótið, til þess að virka ennþá, þar sem 4ðu kynslóðar iPodinn minn er ekki "officially supported" ennþá, og ég hef eiginlega bara verið að hakka þetta saman. Samt sem áður, mér hefur tekist að ræsa og keyra forrit á borð við df. Fyrir neðan má sjá myndir. Smellið á myndirnar til að fá þær stærri:
"Bad command or file name" |
Outputtið úr df forritinu
|
Þegar iPod Linux projectið er komið lengra, þá ætla ég mér að skrifa vefþjón fyrir iPod sem networkar yfir FireWire snúruna, og ég ætla mér að kalla vefþjóninn iPache ;). Hversu svalt er það að serva vefsíður af 75Mhz MP3 spilara?
A little "Dark Poetry" here
#include "woodchuck.h"
#define would 1
#define could 1
#define cant 1
#define wont 1
wood_struct *wood;
int main (void)
{
wood = malloc(sizeof(wood_struct));
if (wood != could)
wood_prep_defaults(wood);
else
{
fprintf(stderr, "Error getting wood to chuck");
exit(1);
}
chuckWoodPt:
if (wouldhuck(woodChuck, wood) == would)
{
if (couldchuck(woodChuck, wood) == could)
{
chucksWood = could;
}
else
{
chucksWood = cant;
}
}
if (wood != wont)
free(wood);
if (!chucksWood == could)
{
exit(1);
}
else
goto chuckWoodPt;
return !could;
}
(Sveinbjorn)
Í bókinni "The Lives Of Animals" eftir J.M. Coetzee, nýlegan nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum, þá er aðalpersóna sögunnar Elizabeth Costello, metsölurithöfundur og grænmetisæta. Hún ávarpar einhvern virðulegan hóp manna, og fordæmir þá fyrir kjötát -- hún gengur meira að segja svo langt að bera saman drápið á dýrum í sláturhúsum við Helförina í síðari heimsstyrjöld.
Eftir fyrirlesturinn kemur reiður gaur upp að henni og segir.
"Miss Costello, just because the Jews died like cattle, it does not mean that cattle dies like Jews.
Skondið.
(Sveinbjorn)
Hérna er illústreruð saga vefsíðunnar minnar.
Og svo myndir frá helginni sem leið. Ég, Arnaldur, Vilborg, Ari og Linda fórum í sumarbústað við Laugarvatn.
(Sveinbjorn)
Tvær mjög áhugaverðar greinar úr The Economist: Science and Technology Section:
"Oh, yes. That guy, Sveinbjörn, he's got upper management written all over him."
(Sveinbjorn)
The Thrill of Icelandic Politics!
featuring Halldór Ásgrímsson"Uh...uhm....sko, ég hef boðað ykkur á blaðamannafund til þess að láta ykkur vita að ... uhm ... þessir ... og þessir ... og þessir líka ...uhm... segja að ég hafi ekki verið neitt spilltur eða neitt...uhm, já, ehrm."
(Thunderous applause)
(Sveinbjorn)
Hahaha!
Ég var að róta í gömlu drasli og fann eldgamlan geisladisk með alls konar skjölum frá því að ég var 14-15 ára gamall, þ.á.m. smásögu sem ég skrifaði á þeim tíma. Þetta er alveg hræðilega embarassingly fyndið. Hérna kemur síðasti hlutinn á henni, þegar aðalpersónan kemur heim til konunnar sinnar eftir næturrölt:
"What's the matter, darling?" she says to me in a sleepy voice. She seems concerned, but it's only an act. I know it for sure. In reality she has grown to despise me because I am no longer a worker, no longer a member of the great hive, and our money has almost run short.
I turn the chainsaw on. This alarms her. I get the satisfaction of seeing a brief look of fear wash over her face.
"...darling?" she utters.
I thrust the chainsaw into her face. She screams but the sound is soon muffled as her flesh is torn asunder by the sharp teeth of my newly aquired machine. I continue to stick the chainsaw into her. I feel my clothes becoming drenched with her blood. Suddenly I hear sirens in the distance. Yes, the police always comes quickly when the disturbance is in a nice white suburban neighbourhood. How did they get to know of it so soon? The neighbours?
For a moment I contemplate going over their house to render unto them the same fate as that of my wife, but I think the better of it. I see only one option open to me. I throw the blood-stained chainsaw on the floor. The casing of the engine breaks with a snap. So much for my Raisenhof Quality Chainsaw. I rush into our bedroom. It's all so nice and perfect. The perfect rug, the perfect lamps, the perfect drawers and the perfect furniture. It infuriates me.
The sirens are getting closer, I can hear them clearly now. I reach for the top drawer of my wardrobe. Hidden among the socks is the American's Right to Defend Himself. My fingers lock around a hard steel object. That's it. I pull out the handgun. The sirens are outside my house now. I can hear the footsteps of men approaching the house. My house.
The footsteps stop in the doorway. I hear someone say "Oh, my God!". I'm sure that what I did to my wife offended his burgeoise sensitivities. I stare at the piece in my hand and for I brief moment I wonder whether I am to use it upon the intruders or myself. It's an easy decision.
Haha, já. What a sick little bastard I was...
(Árni)
Ég rakst á grein á Múrnum þar sem höfundur þykist telja upp og hrekja helstu ástæður fyrir því að flytja beri Reykjavíkurflugvöll. Mig langar til að benda á nokkur atriði varðandi þetta mál:
Ein af rökunum fyrir því að fá flugvöllinn eitthvert annað er að miðbæjarkjarninn muni eflast -- þéttari byggð í Vesturbænum (og möguleikinn á að byggja hærri byggingar) munu geta aukið "population density" í Reykjavík og fyrir vikið bætt úr samgönguvandanum. Þar að auki mun það draga úr þeirri hljóðmengun sem miðbæjarbúar þurfa að þola. Höfundur virðist hafa takmörkuð rök gegn þessu:
"Nýtt hverfi í Vatnsmýrinni myndi því ekki breyta miklu fyrir þéttingu byggðar, jafnvel þótt þar yrðu einungis blokkir."
Mér þætti gaman að vita hvað höfundur telur að þétt byggð Vatnsmýri geti haldið marga íbúa -- en mér þykir ljóst að þeir skipta fleiri þúsundum. Þetta er risastórt svæði, og án flugvallarins mætti reisa háhýsi bæði í Vatnsmýrinni og öðrum hverfum í uppbyggingu.
Síðan er brugðist við með ad hominem kaldhæðni:
"...[ofantöld] rök hafa einnig verið notuð af fólki sem yfirleitt virðist ekki hafa mikinn áhuga á bættum almenningssamgöngum."
Svona spekúlasjónir um hvað fólk hefur áhuga á er málinu óviðkomandi. Ef ríkur maður segir að það beri ekki að skattleggja þá ríku, þá er málstaður hans engan veginn hrakinn með því að benda á að hann hafi hagsmuni að gæta í málinu. Ég verð alltaf pirraður þegar ég sé svona lagað í prenti...
En já, þetta heldur áfram:
"Rökin fyrir íbúðabyggð í Vatnsmýrinni eru því ekkert sérlega öflug, nema maður sé fasteignaspekúlant. Þá má vissulega mikið upp úr því hafa að fá dýrar lóðir á góðum stað í bænum. Ljóst er að það verða engir öreigar sem munu búa þar."
Áhrifin sem byggðarland í Vatnsmýrinni hefði á fasteignaverð í höfuðborginni eru engan vegin ljós, en þó er víst að aukið framboð á húsnæði miðsvæðis mun gera fleirum kleyft að búa miðlægt, nálægt Háskóla Íslands, Landsspítala og öðrum mikilvægum þjónustumiðstöðum. Og hvort öreigar muni búa þarna er málinu algjörlega óviðkomandi -- í dag búa öreigarnir heldur ekki í Vesturbænum, og möguleikar þeirra á að búa miðlægt geta aðeins batnið með auknu húsnæðisframboði.
En þessi grein verður bara hlægilega barnaleg fyrir rest:
"Því miður hafa heyrst í umræðunni dylgjur um það séu einkum þingmenn úr landsbyggðarkjördæmum sem leggist gegn færslu flugvallarins en slíkt er auðvitað fjarstæða. Persónulegur ávinningur 30 einstaklinga skiptir auðvitað engu máli í jafn mikilvægu máli, en vilji kjósenda þeirra hefur trúlega mun meira að segja um afstöðu þeirra."
Já, auðvitað. Þingmenn myndu aldrei setja eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni kjósenda, er það? Nei, slíkt gerist ekki. Ég segi bara "Wow, there's one born every minute...".
"Sá ávinningur sem landsbyggðarfólk hefur af flugi til borgarinnar liggur því ekki síst í staðsetningu flugvallarins. Eins og málin standa nú virðist hann vega töluvert þyngra en tilfinngarík umræða um "þéttingu byggðar" og gildi hennar."
Umræðan (frá mínu sjónarmiði) er pragmatísk og nytjastefnuleg fremur heldur en tilfinningarík -- hún snýst um að bjóða sem flestu fólki sem bestan kost í ljósi takmarkaðra gæða. Eini tilfinningaþrunginn sem ég verð var við er andúðin og reiðin sem blossar ávallt upp meðal byggðastefnusinna þegar eitthvað skal gera fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur verið 15-20 ára stríð að fá tvöfaldann veg til Keflavíkur, slysamesta veg landsins, vegna mótmæla um að það sé "alltaf verið að pukra við fólkið á höfuðborgarsvæðinu" og álíka retórík -- og það hefur verið borgarbúum ljóst að það fæst lítið sem ekkert pólitískt kapítal upp úr því að gera nokkurn skapaðan hlut fyrir Reykvíkinga.
Í lokinn langar mig til þess að benda á að þótt flugvöllurinn verði fluttur (sem allt virðist standa gegn), þá þarf það ekki nauðsynlega að vera til Keflavíkur. Það mætti hæglega reisa annan flugvöll á skynsamlegri stað. Ef menn leggja flugferð á sig á annað borð, þá hljóta þeir að geta þolað tíu eða fimmtán mínútur í bifreið.
Annars hefði ég mikinn áhuga á að fá í hendurnar tölurnar yfir farþegafjölda og traffík gegnum Reykjavíkurflugvöll áður en lengra er haldið...
(Sveinbjorn)
Vox Machina: Online text to speech converter/synthesizer by yours truly.
(Sveinbjorn)
Jæja, þá er það komið í vísindatímaritin: Gyðingar eru genetískt gáfaðri heldur en við aumu Gentílar.
(Sveinbjorn)
Jæja, ég verð eiginlega að stunda smá þjófnað frá honum Aðalsteini og linka hér á lista sem var settur saman af einhverjum kexrugluðum bandarískum íhaldsmönnum:
10 Most Harmful Books Of All Time
Lesið þetta: hreint út sagt ótrúlegt. Og síðan á sumt liðið í dómnefndinni að heita fræðimenn...
Ég ætla að koma með minn eigin lista af 10 skaðsömustu bókum allra tíma:
Biblían á latínu
Biblían á ensku
Biblían á grísku
Biblían á spænsku
Biblían á frönsku
Biblían á þýsku
Biblían á ítölsku
....o.s.frv. í röð tungumála...
Mér finnst reyndir fyndið að flest af þessu brjálaða kristna liði hefur ekki einu sinni lesið biblíuna -- Tækju þeir sér tíma í það, þá gerðu þeir sér kannski grein fyrir því að hún er illfnykjandi turdur pakkaður með pseudo-philosophical vitleysu og siðferðisboðskapi fyrir gungur.
(Hugi)












