Jæja, þetta fór eins og við mátti búast, þótt það hafi í sjálfu sér verið fáránlegt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um að ræða við fólk. Mörlandinn lifir þá bara æðrulaus enn eina kynslóðina við okurvexti og fákeppni, svo ekki sé minnst á okkar margrómaða Skólaost™ og Brauðskinku™. Guðni Ágústsson hlýtur að vera að fagna með svellköldum Polar Beer™. Og hver veit, með einhverri lukku mun næsta ríkisstjórn Simma & Co kannski bjóða okkur upp á þjóðaratkvæðagreiðslu um að ræða við ESB um að segja upp EES-samningnum?