Results for 2026-08

Sic transit gloria mundi

30.8.2026 kl. 08:18 - Sveinbjörn Þórðarson

Jæja, þetta fór eins og við mátti búast, þótt það hafi í sjálfu sér verið fáránlegt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um að ræða við fólk. Mörlandinn lifir þá bara æðrulaus enn eina kynslóðina við okurvexti og fákeppni, svo ekki sé minnst á okkar margrómaða Skólaost™ og Brauðskinku™. Guðni Ágústsson hlýtur að vera að fagna með svellköldum Polar Beer™. Og hver veit, með einhverri lukku mun næsta ríkisstjórn Simma & Co kannski bjóða okkur upp á þjóðaratkvæðagreiðslu um að ræða við ESB um að segja upp EES-samningnum?

Separator

12 þúsund flettur

5.8.2026 kl. 20:10 - Sveinbjörn Þórðarson

Viðbæturnar við ensk.is eru nú orðnar tólf þúsund talsins, og rúmlega 41 þúsund í heildina. Það eru þúsund viðbætur á rúmlega þremur mánuðum. Á þessum hraða verður orðabókin orðin andskoti reffileg eftir 3-4 ár.

Separator