Who you think taught you to smoke trees?

24.4.2026 kl. 19:41 - Sveinbjörn Þórðarson
Ályktun dagsins: Dr. Dre (Andre Romell Young, og nei, hann er hvorki með doktorsgráðu né læknismenntun) er ekkert sérstaklega skemmtilegur rappari. Fyrir utan tæknina þá er hann svo neikvæður, iðulega í vörn, óöryggistónninn allsráðandi, alltaf að svara ónefndum gagnrýnendum í stað þess að rappa á afslappaðan, skemmtilegan, sannfærandi hátt (eins og kollegar sínir) um hvernig hann er langbestur, sofandi hjá heitustu píunum, reykjandi gras og keyrandi flottustu bílana.
Separator