Ensk.is með rúmlega 38 þúsund færslur

20.6.2025 kl. 01:01 - Sveinbjörn Þórðarson

Það er gaman frá því að segja að vinna við ensk.is orðabókina hefur gengið vel síðastliðið hálft ár. Færslurnar eru orðnar að verða 38 þúsund, þar af rúmlega 8 þúsund handsmíðaðar viðbætur og endalaust margar umbætur á upprunalegu skilgreiningum Zoega. Vefurinn hefur m.a. verið sérlega endurbættur fyrir tæki á borð við snjallsíma. Nú geyma síður fyrir stakar færslur auk þess samheiti yfir viðkomandi enskt orð, eins og sjá má á myndinni. Heimsóknum á vefinn fjölgar jafnt og þétt, sirka 400 stakir alvöru gestir á dag að öllu jöfnu, en yfirgnæfandi meirihlutinn af traffikinni kemur reyndar frá skröpurum stóru tæknirisanna, þ.m.t. þeirra kínversku, sem skófla þessu væntanlega inn í þjálfunargögn fyrir stóru mállíkön sín. Það hlýtur að skila sér á einn eða annan hátt í betri íslenskuskilningi gervigreindarinnar þegar fram líða stundir. Í millitíðinni hjálpar þetta vonandi öllum Íslendingum sem þurfa að eiga við enska tungu.

ensk.is synonyms
Separator