Meistari Bill Atkinson fallinn frá

8.6.2025 kl. 16:55 - Sveinbjörn Þórðarson

Nú er snillingurinn Bill Atkinson fallinn frá. RIP. Atkinson var heilinn á bak við QuickDraw og svo auðvitað HyperCard, sem var ótrúlega framúrstefnulegt og notendavænt forritunarumhverfi sem keyrði á Mökkum í gamla daga. Mín fyrstu skref í forritun og hugbúnaðargerð voru einmitt tekin í HyperCard fyrir sirka 30 árum. Það vita það ekki margir, en Hypertextinn í HTML er nefndur í höfuðið á HyperCard (Tim Berners-Lee var mikill aðdáandi). Læt hér fylgja hlekk á fyndna sögu af því þegar sálarlausa, gráa mannauðs-töflureiknisfólkið hjá Apple reyndi að mæla framlegð Atkinsons.

Separator