Í kvöld komst ég að því að þetta einkennilega orð, rabbarbari, er faktískt ra-barbari!
Ég var að fara í gegnum bókakassa í geymslunni og fann þar ýmsar gersemar, til dæmis eina uppáhaldsbók mína úr æsku, Bróðir minn ljónshjarta eftir Astrid Lindgren, barnabók sem fjallar um dauðann, ótrúlegt meistaraverk sem hefði átt að fá nóbelsverðlaun. Þessi fer ekki í Góða hirðinn.