Þetta endar allt saman í tárum ef af verður. Hélt að Katrín og Svandís væru skynsamari en svo. Sjallarnir og embættismenn þeirra í ráðuneytunum munu kæfa allt gott í fæðingu, Bjarni mun stjórna pyngjunni og Katrín fær að vera andlit sveltistefnunnar.
Og það er hárrétt sem Þórður Snær skrifar: "Kostnaðurinn [mun ekki] lenda hjá Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, kjósendur þeirra vita að hverju þeir ganga og hafa söguna til að máta sig við. Nei, hann mun lenda kyrfilega hjá Katrínu Jakobsdóttur og Vinstri grænum."
En hey, eftir að VG tekur skellinn flyst vinstrifylgið á Íslandi kannski yfir í flokk sem er ekki jafn framsóknarlegur. Á allavega erfitt með að sjá vinstri-lopapeysu-latté-feminista-vini mína í 101 fyrirgefa þessi svik.