12.12.2011 kl. 22:28
Ég var spurður hvaðan línan "Hægri og vinstri, og ég horfi á hryggur", titillinn á síðustu færslu, kemur.
Þetta er úr lagi Bubba Morthens "Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador" af plötunni Lífið er ljúft. Textinn í þessu lagi er faktískt nokkuð góður:
Ég er staddur á stað þar sem línan liggur og lífið hjá fólkinu er svart og hvítt. Þar er listamaðurinn glaður, þægur og þiggur í þriðja sinn styrkinn til að gera eitthvað nýtt. Á fjögra ára fresti þeir ganga í gömul spor gjaldið til baka er heldur ekkert slor. Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador. Ég er staddur á stað þar sem línan liggur mér leiðist fólkið sem stjórnar þar. Ef þú hefur þrælslund, ert duglegur og dyggur og draumar þínir stangast ekki á við reglurnar þá skaltu ganga múlbundinn og máta þeirra spor og merkja þig fuglinum fyrir næsta vor. Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador. Ungur ég heyrði að hugsjón væri dyggð og ég hlustaði á flokkana tala um þessa tryggð og þeir sem enga hugsjón hafa halda kannski það að hamingjan sé fólgin í að hreyfast ekki úr stað. Ég er staddur á stað þar sem línan liggur og loforðin vaxa á flokksins vör smælinginn hann týnir upp loforðin tryggur og tekur á sig skítverkin en fær aldrei svör Þeir hringja og vilja kaupa kjarkinn þinn og þor kannski vantar flokkinn aðeins betra skor. Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador. Ég er staddur á stað þar sem lygin liggur sem lína dregin og skilur að hægri og vinstri og ég horfi á hryggur hvernig þeir leiða fólkið á sinn merka stað. Og ég geng frá línunni og legg mín eigin spor lækurinn sem rann svo tær er orðinn drullufor. Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador.
