Þegar ég horfði á viðtalið við Styrmi Gunnarsson í Silfrinu fyrr í dag varð mér af einhverri ástæðu hugsað til Rýtingsstungunnar miklu...

UPPFÆRSLA 1. des: Nú hefur mér verið bent á að Egill Helgason bendir á það sama...
(Sveinbjörn)
Fyrst byrjar Björn á því að vísa í ævisögu séra Sigurðar Stefánssonar Þetta gerir hann til þess að benda á sambærileika þeirra tíma sem við lifum nú, og annarra tíma sem á undan eru gengnir og er orðið nokkuð vinsælt stílbragð undanfarið. Björn ákveður hinsvegar þarna að slá sig til einhverskonar alþýðuriddara og breytist eiginlega í nokkurskonar hálfgildings-kommúnista með andstyggð á peningahyggju:
"Á sama tíma hafi óhóf og alls konar bruðl og reiðileysi aukist hjá þorra fólks, einkum þó í Reykjavík. Fólk hafi orðið því nautnasjúkara og frábitnara stöðugri líkamlegri vinnu því meiri peninga, sem það hafði handa á milli. Sá hafi þótt mestur, sem gat fengið sem mest kaup fyrir sem minnsta vinnu."
og
"Nýjar verslanir spruttu upp sem arfi í vætutíð. Hvarf fjöldi manna að því ráði frá nytsamlegri framleiðslu og af lítilli forsjá og litlu verslunarviti eða þekkingu. Þessir nýgræðingar höfðu eintóman óþarfa á boðstólum, sem þeir prönguðu út við okurverði í kaupfíkinn almenning."
Að þessu loknu snýr hann sér að Icesave og fyrirhuguðum skattahækkunum, og verður þá hálf-nazískur í einangrunarstefnu og fullveldishugsjónum. Á sama tíma ofur frjálshyggur þegar kemur að skattamálum, því auðvitað eiga einstaklingar ekki að borga fyrir skuldbindingar ríkisins, sem þeir eru þó hluti af, með sköttum sínum.
Ennfremur telur Björn enga ástæðu til þess að skoða aðdraganda Icesavemálsins, enda er slíkt pjatt bara fyrir vitleysinga og kommúnista.
"Icesave-samningarnir við Breta og Hollendinga og meðferð þeirra í höndum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar er alvarlegasta glappaskot íslenskra stjórnvalda í samskiptum við aðrar þjóðir frá 1918. Ástæðulaust er að deila um ástæður eða aðdraganda samninganna."
Að lokum er Björn orðinn anarkisti, og boðar að ríkið með sinni eldrauðu skattakrumlu og óþolandi milliríkja-diplómasíu, sé VERSTI ÓVINUR fólksins.
"1. desember 2009, stendur íslenska þjóðin í þeim sporum, að ríkisstjórn Íslands er helsti óvinur þess, að þjóðin haldi reisn og efnalegum styrk inn á við og út á við, svo að ekki sé minnst á fullveldið sjálft."
Mig minnti nú að þetta væri ennþá, eftir allt saman lýðræðisríki, og að Björn hefði nú notið þess ansi hreint ágætlega áður en hann og vinir hans klessukeyrðu eimreiðina.
Númer eitt: Ef Björn Bjarnason hefur einhvern tímann unnið "stöðuga líkamlega vinnu" vildi ég gjarna sjá sönnun þessi. T.d. mynd af honum með hönd í köldu vatni eða að míga í saltan sjó.
Númer tvö: Egill Helgason er ágætur eins langt og hann nær en ef ég segðist vera "erlendur sérfræðingur" í minni eigin naflaló gæti ég sennilega fengið inni í Silfrinu.

0
▽
Hmmm... En nú voru það ekki óvinir innan ríkisins sem stungu okkur í bakið samkvæmt Styrmi, heldur Bretar, Hollendingar og Norðurlandaþjóðirnar. Jú, og Bandaríkjamenn að sjálfsögðu.