Ég man þegar þessi umræða fór fyrst í gang samhliða útgáfu Windows 98 á íslensku, þá var bent á að þegar væri búið að íslenska bæði MacOS og KDE viðmótin. Engu að síður borgaði íslenska ríkið Microsoft fáránlega háar upphæðir fyrir þýðinguna, sem var svo ónothæf vegna samhæfnivandamála.
Síðan þá hefur nákvæmlega ekkert áunnist nema að Microsoft hefur fengið enn fleiri milljarða í vasann frá okkur skattborgurum og við sitjum uppi með heila kynslóð ungra íslendnga sem eru computationally retarded fyrir vikið.
Ég man ekki betur en að menntamálaráðuneytið hafi splæst í heilsíðuauglýsingu í mogganum þar sem windows 98 á íslensku var stillt upp við hliðina á íslendingasögunum.
Ég legg til að þeir sem eru ábyrgir fyrir þessum Microsoft-bias hins opinbera á íslandi verði flengdir til óbóta með USB snúrum.

0
▽
Þetta er blekaður maður! Djöfull er ég brilliant!