31.7.2009 kl. 20:33

Um fjögurleytið í morgun (04:00, 31. júlí) var ég eins og oft áður á MSN á meðan ég var að vinna ... hrikalegur ósiður. Það vildi svo til að Guðmundur félagi minn sendi mér link á einhverja síðu sem hét Wikileaks, en vinur hans tekur þátt í umsjón síðunnar. Þangað fór ég og sótti langt og mikið PDF skjal sem virtist vera frá Kaupþingi. Mér þótti þetta merkilegt, hlaut að vera e-ð áhugavert við þetta fyrst einhver hafði haft fyrir því að "leka" þessu, og sendi það á Gunna Hrafn vin minn, en hann starfar sem blaðamaður hjá RÚV. Gunni fór með þetta upp á fréttastofu í dag, þar sem menn voru skeptískir í fyrstu, en fóru þó strax í að rannsaka málið. Og viti menn, hvað sé ég í fréttunum í kvöld nema umfjöllun um þetta skjal og innihald þess!

Samkvæmt heimildum mínum voru Kaupþingsmenn vist alveg að skíta á sig út af þessu þegar fréttastofan hafði samband við þá, enda sýnir skjalið fullt af peningatilfærslum til Tchenguiz bræðranna og Exista og annara glæpamanna rétt fyrir hrunið. Með því að setja lögfræðingabatteríið í gang, hótandi bæði RÚV og Wikileaks, hafa þeir svo gott sem viðurkennt að skjalið sé ófalsað. Nú er bara að sjá hvort þetta lið fari nú ekki örugglega í fangelsi...

En hver segir svo að MSN sé tímaeyðsla? Veit ekki betur en að ég hafi þarna átt þátt í að koma skítnum í fjölmiðla.


3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

Grétar | 1.8.2009 kl. 11:29
Grétar

Vel gert!

Aðalsteinn | 1.8.2009 kl. 14:43
Aðalsteinn

Nauts!