Þetta kom mér virkilega á óvart.
Einn af hverjum sjö, eða uþb 15% íslensku þjóðarinnar býr erlendis. Þetta er rosalega mikið. Ég er viss um að það búa ekki 10 milljón Bretar utan Bretlands.
Kannski skýrir þetta af hverju maður rekst alltaf á helvítis íslendinga hvert sem maður fer...
(Einar Jón)
Mér skilst nú að um þriðjungur þjóðarinnar hafi yfirgefið landið á síðari hluta 19du aldar. Þetta er nú ekki mikið miðað við það.
Síðan hlýtur þetta að vera frekar vafasöm tölfræði: skv. althingi.is þá voru bara um 7000 manns sem kusu utan kjörstaðar, erlendis. Það skal enginn segja mér að einungis 7di hver íslendingur búsettur erlendis kjósi.
Scratch that, skjalið sem ég skoðaði var eldgamalt, frá 1996
http://www.althingi.is/altext/120/s/0693.html

0
▽
Þetta hlutfall fer víst hratt hækkandi, þeir segja að 50 fjölskyldur með búslóð yfirgefi landið á viku. Hvenær förum við að nota hugtakið the Icelandic diaspora?