Too many suckaz and not enough time, to cap 'em in da head wit a clip from me nine. -- Mad Lion
Nýja bókin eftir Malcolm Gladwell, Outliers, heldur því fram að það taki um 10 þúsund klukkustundir fyrir hvern sem er að verða frábær ofur-meistari á einhverju sviði. Það eru u.þ.b. 10 klst. á dag í 3 ár, eða 5 klst. á dag í 6 ár, eða 2.5 klst á dag í 12 ár, eða jafnvel klukkustund á dag í um 24 ár. Ég spyr: Ef þetta er rétt hjá honum, af hverju eru þá til svona margir sem eru hreint út sagt ömurlegir í starfi sínu?
Annars þá hefur þessi ábyggilega eitt 10 þús klukkustundum í að læra að spila þetta orchestral verk á hljómborð.
(Sveinbjörn)

0
▽
Fólk er crappy í starfinu sínu af því það eyðir 10000+ klst án nokkurs áhuga. Ég geri ráð fyrir því að MG eigi við 10000 klst af focused work.