Jæja, þá fer kennsla bráðum að byrja. Ég verð tutor í kúrsinum European History I, og kenni Early Modern European History (1500-1800) fram að áramótum. Er að vinna að því að koma upp leslista o.fl. Ætla að hafa áherslurnar afar hugmyndasögulegar og ætla að láta krakkana byrja á því að lesa Prinsinn eftir Machiavelli.
Ég kenni 3 tíma á viku, og nemendurnir verða flestir u.þ.b. 18-19 ára. Hins vegar verða einhverjir e.t.v. 17 ára, og fyrir vikið hef ég skemmtilega nokk þurft að veita Edinborgarháskóla leyfi til þess að framkvæma svokallaðan 'background check' til þess að ganga úr skugga um að ég sé 'suitable for teaching minors.' Það finnst mér mjög fyndið.
(Doddi)
það læðist að mér sá grunur að svona 'background check' gæti að hluta til farið þannig fram að nafn viðkomandi er slegið inn í nafntogaða leitarvél á internetinu sem byrjar á G, fyrsta hit mun án efa vera akkúrat þessi síða með tilheyrandi diskúsjón um <18 ára 'lullur' ;)
Ef við gerum svo ráð fyrir að Sveinbjörn verði dæmdur 'suitable' engu að síður, þá mun sennilega ekki líða langur tími þangað til téðar lullur gúgla sjálfar þennan funheita íslenska kennara-fola sem þær lentu hjá...

0
▽
Ætla þeir að treysta þér fyrir 17 ára börnum? Ég myndi aldrei hleypa þér nálægt barninu mínu!