Innilegur áhugi Bandaríkjamanna á skotvopnum er að mörgu leyti heillandi. Eða kannski er bara gaman að heyra fólk tala af kunnáttu um hvað eina sem er.
Í vor sótti ég námskeið í miðaldafræði í háskólanum, kennt af bandarískum kennara, miklum gáfu- og menntamanni, forseta bandaríska miðaldafræðifélagsins. Námskeiðið var aðallega sótt af útlendingum, mest Bandaríkjamönnum og Bretum. Í gilli einu sem haldið var í tengslum við námskeiðið tók einn Bretinn upp á því að gantast í Bandaríkjamönnunum yfir nýlegri frétt um að bílasali í Bandaríkjunum hefði boðið ókeypis skammbyssu með hverjum keyptum bíl. Í ljós kom að Bandaríkjamennirnir höfðu einnig fengið veður af þessu, en það sem þeim fannst athugaverðast við þetta var að skammbyssan sem í boði var var ómerkileg og léleg.
Síðan spunnust upp líflegar umræður meðal þessara bandarísku menntamanna um skotvopn, verð þeirra og gæði.
Skotvopnanördismi er í sjálfu sér bara eins og hver annar nördismi -- endalaust gaman að tapa sér í tæknifantasíu. Það sem mér þótti aftur á móti skemmtilegt nuance þarna í greininni var að umræðan snérist um ágæti þess að nota haglabyssur til þess að verjast zombíum ;)
0
▽