17:42 30.08.2008

Komið í ljós að ég flýg aftur til Skotlands 7. september. 8 dagar til þess að hitta á mig hérna heima.

17:25 29.08.2008

Var að koma heim á Skerið í heimsókn. Verð hérna í rúma viku áður en ég flýg aftur út til Skotlands. Verð með gamla símann minn, 8610584.

05:14 28.08.2008

Ég var að enda við að fá tilboð frá Edinborgarháskóla upp á 12 þúsund pund á ári í þrjú ár. Þetta eru auðvitað frábærar fréttir og hefur í för með sér að ég verð í Edinborg næstu þrjú ár í stað þess að koma heim. Ég ætla að detta vandlega í það í kvöld...

17:46 26.08.2008

Fiat justitia, et pereat mundus.

14:14 25.08.2008

Af hverju heitir íslenskt Scrabble ekki 'skrafl'?

15:32 22.08.2008

Ég er sannfærður um að ég hafi fundið fyrirmyndina eða innblásturinn fyrir Fry and Laurie Language skettsjinn -- nefnilega, þetta hér viðtal við John Searle.

19:19 21.08.2008

Hér er brot úr viðtali við Bertrand Russell, 87 ára gamlan, um reykingar.

Get the Flash Player to see this player.

Karlinn vill meina að reykingarnar hafi hreinlega bjargað lífi sínu.

13:49 18.08.2008

Hahaha!

Lothian lögreglan fann bakpokann minn og fartölvuna und alles. Fortuna optima.

13:13 14.08.2008

Er allt til á netinu?

Commentin eru líka góð. Þetta er svaka debat.

12:23 12.08.2008

I should liken Kant to a man at a ball, who all evening has been carrying on a love affair with a masked beauty in the vain hope of making a conquest, when at last she throws off her mask and reveals herself to be his wife. -- Schopenhauer

Í frásögn Schopenhauers þá er eiginkonan kristni.

17:05 08.08.2008

Fyllti út lögregluskýrslu í dag og keypti mér nýja fartölvu. Þetta var ekki svo hrikalegt -- 1200 pund með stúdentaafslætti fyrir ódýrustu MacBook Pro vélina, sem er í grófum dráttum eins og gamla vélin mín nema með stærri hörðum diski. Síðan fæ ég væntanlega vaskinn endurgreiddan þegar ég fer heim.

Hins vegar mun ég nú þurfa að venjast evrópsku lyklaborð -- með litlum Shift takka og hærri Return takka. Síðan er helvítið auðvitað með breskri kló.

Annars verð ég að bæta því við að Time Machine er argasta snilld. Það var í alla staði einfalt og sársaukalaust að restore-a allt kerfið mitt frá nýjasta afriti. Ég var kominn með gamla vinnu-umhverfið mitt í fúll svíng minna en klukkutíma eftir að ég kom heim með maskínuna.

14:39 07.08.2008

Bakpokanum mínum með fartölvunni minni var stolið í gær og ég er núna tölvulaus. Tölvuleysið er það hrikalegasta sem hefur komið fyrir mig í langan tíma. Mér líður eins og Samson án hársins. Ef tryggingarnar bæta þetta ekki þá setur þetta mig aftur um 200 þúsund krónur -- og það eru 200 þúsund krónur sem ég hef engan veginn ráð á að missa.

Lán í óláni þá gerði ég afrit með Time Machine í gærmorgun, þannig að ég missi allavega ekki gögnin mín. Það hefði verið ómælanlega hrikalegt að missa mastersritgerðina. Þetta setur mig þó aftur um 2 daga af vinnu.

Ég sé nú mikið eftir því að hafa ekki sett Firmware Password á vélina. Mig hryllir við tilhugsunina að einhver sé að njóta fallegu Mac Book Pro tölvunnar mínnar og gramsa í gögnunum mínum.

Ekki hjálpar að það voru tvær bókasafnsbækur í bakpokanum mínum sem ég mun væntanlega þurfa að bæta safninu. Það sem verra er, þá voru þetta bækur sem eru mikilvægar fyrir mig við að vinna að mastersritgerðinni. Það á eftir að vera erfitt að grafa upp önnur eintök.

Ég vona að skíthællinn sem stal bakpokanum mínum fái krabbamein og deyji kvalarfullum, einmanalegum dauðdaga.

11:56 02.08.2008

Var að lesa þessa grein á mbl.is og varð hugsað til þess hversu frábærlega viðeigandi það sé að það sé til ógnarlegur hryðjuverkamaður sem heitir Chaos.

23:12 01.08.2008

Var að rekast á gamalt BBC viðtal við breska heimspekinginn Alfred Ayer um rökfræðilega raunhyggju, heimspekistefnuna sem dómíneraði fyrri hluta 20. aldarinnar. Þetta er alveg frábært stöff. Ayer situr þarna og keðjureykir og talar um heimspeki með posh Oxford-hreimnum sínum. Fyndið, ákveðnir taktar hjá honum minna mig á hann Þorstein Gylfason heitinn.

1. hluti af Ayer viðtalinu
2. hluti af Ayer viðtalinu
3. hluti af Ayer viðtalinu
4. hluti af Ayer viðtalinu

Þetta er úr gamalli seríu af þáttum með Bryan Magee þar sem hann talar við fræga heimspekinga. Alveg fáránlega intellectual sjónvarpsefni. Synd að það er ekki meira af þessu framleitt í dag. Heimur versnandi fer.

Uppfærsla: Hlekkir yfir á helling af þessum Bryan Magee viðtölum á þessari síðu. Þetta er allt úr BBC þáttaröð sem hét "Men of Ideas", frá 1978.