Results for 2008-07
Það er komið á hreint: ég tek lestina suður til Lundúna 24. ágúst næstkomandi, og flýg síðan þaðan heim á Skerið þann 29.
(Nanna)
Góðir dagar framundan: Naldó og Ala í heimsókn hérna í Edinborg, og síðan Tom Waits tónleikar á mánudaginn.
(Sveinbjörn)
Glöggir lesendur hafa e.t.v. orðið varir við ást mína á franskri pómó heimspeki. Vek því athygli á þessum brilliant xkcd brandara.
(Sveinbjörn)
Flash video (.flv) er eitt af stóru nýjungunum á netinu undanfarin ár, og nú er hægt að nálgast alls konar efni á YouTube, Google Video o.fl. stöðum. Það er hins vegar pirrandi að horfa á vídeó í vafranum sínum -- sérstaklega lengra myndefni -- og oft vill maður geyma klippur til áhorfs síðar. Ég held að ég hafi dottið inn á mjög góða aðferð til þess að gera þetta í Mac OS X.
Skref 1: Sækja og setja inn SafariStand
SafariStand er plug-in fyrir Safari sem bætir við alls konar gagnlegum fídusum, þ.m.t. að láta 'target _blank' glugga opnast í nýjum tab, fjarlægja metaláferð, skoða HTTP headera o.fl. Ofan á allt þetta er nýjasta SafariStand með "Download FLV" fídus:
![]()
Með þetta í gangi er hægt að Cmd-smella á embedded Flash vídeó og hala því niður sem flv skjali.
Skref 2: Sækja VLC 0.9
Nýjasti VLC, útgáfa 8.6, styður afspilun FLV en er með mjög gloppóttan stuðning -- leyfir manni t.d. ekki að hoppa milli staða í vídeói, og gefur upp fullt af villuboðum.
Hins vegar er mjög góður stuðningur í allra, allra nýjustu útgáfunni, 0.9, sem hægt er að sækja hér.
Þetta SafariStand/VLC kombó er að reynast mér dúndurvel. Mæli með þessu.
(Sveinbjörn)
Ég var að skoða nýja uppfærða vef Háskóla Íslands, og ég verð að segja að mér finnst þetta alveg einstaklega smekklegur og flottur vefur í alla staði.
(Sveinbjörn)
Vil vekja athygli á BBC heimildamynd sem heitir The Trap. Myndin fjallar um hugmyndafræðilega þróun á 20. öld, og snertir inn á leikjafræði, kalda stríðið, nýfrjálshyggjustefnu Reagans og Thatchers, og frelsishugtök Isaiah Berlins. Óvenjulega intellectually órienterað sjónvarpsefni. Ég var mjög hrifinn...
Hinir hlutarnir ættu að vera í related links.
(Brynjar)
Ef eitthvað sýnir að höfundaréttarlöggjöf er komin út í algjöra helvítis vitleysu þá er það þessi grein..
(Arnaldur)
Athyglisvert að sjá niðurstöðurnar ef maður leitar að "Wanker" á IMDB.
(Sveinbjörn)
Myndir frá Mars af vefsíðu NASA, teknar af Phoenix próbinum. Þetta lítur út eins og landslagið á Íslandi.
(Sveinbjörn)
