Results for 2008-03
Hann Dolli sendi mér ímeil í dag og benti mér á að það er vist að koma út ný bók í O'Reilly tölvubókaseríunni:
(Halldór Eldjárn)
Ég vaknaði upp í misanþrópísku skapi í dag, og varð hugsað til þess hversu merkilegt það er að mörgum sköpunarsinnum bjóði við þróunarkenningunni sökum þess að hún samræmist ekki mannlegri reisn. Þeir álíta það niðrandi að kenna manninn við apa.
Ég held að enginn sem hefur kynnt sér mannkynssöguna hafi neitt sérstaklega hátt álit á mannlegri reisn. Undanfarin sex þúsund ár hefur varla liðið sá dagur að mannfólkið sé ekki kerfisbundið að nauðga, drepa og pynta hvert annað í stórum stíl. Samræmist það mannlegri reisn?
Ef eitthvað er, þá ætti þetta lið að vera ánægt með apa-teóríuna. Af mannskepnunni að dæma, þá er hún frekar afkomandi hýenunnar eða bandormsins.
(Doddi)
Meine Damen und Herren: Ég kem heim á Skerið í vikulanga heimsókn þann 27. mars - 3. apríl. Verð með íslenska gemsann eins og venjulega. Þar sem þetta er stutt heimsókn, vona ég að geta dottið í það með sem allra flestum -- Þar sem námslánin mín voru að detta inn, og það í pundum á núverandi gengi krónunnar, hef ég e.t.v. ráð á að kaupa nokkrar umferðir af nektari Heiðrúnar.
(Sveinbjörn)
Á Íslandi er öll pólitík öfugsnúin: Sjálfstæðisflokkurinn er skipulagður og miðstýrður ("they all toe the party line"), Samfylkingin fylkist ekki saman um nokkurn skapaðan hlut, Framsóknarflokkurinn sækir síst af öllum fram á við, og Frjálslyndi flokkurinn vill ekki útlendinga. Orwell yrði stoltur.
(Sveinbjörn)
Og svo ætlast íslenska lögreglan til þess að þeim sé sýnd virðing.
(Sveinbjörn)
Enska tungan er merkilega sjálfri sér ósamkvæm. Menn sem leggja stund á fræði á borð við 'biology', 'sociology' og 'gynecology' bera starfsheitin 'biologist', 'sociologist' og 'gynecologist'. En ef maður leggur stund á guðfræði, 'theology', þá er maður 'theologian'. Og hlutirnir verða enn verri. Heimspekingur er 'philosopher', en læri menn guðspeki - 'theosophy' - þá eru þeir ekki 'theosopher', heldur 'theosophist'.
(Sveinbjörn)
Að fjarlægja Garfield úr Garfield skettsjum breytir þeim í kvalarfulla existensjalistíska agóníu Jóns.
(Gunni)
"Java is to computer languages what English is to spoken languages....clunky but totally acceptable to people that don't know any better." -- Anonymous
"Saying that Java is nice because it works on all operating systems is like saying that anal sex is nice because it works on all genders." -- Alanna
(Sindri)
Mjög fyndið. Ég var nýbúinn að pósta link yfir á hefðbundna rökræðutækni þegar mér var bent á eftirfarandi fréttabút úr þættinum Kompás. Þetta er skýrasta og rosalegasta dæmið sem ég hef séð um argumentum ad Hitlerum:
(Sveinbjörn)
Fyrir tæplega ári síðan skrifaði ég færslu um hversu mikið mbl.is vefurinn sökkar frá sjónarhóli lean, mean, parsimonious, efficiency-obsessed vefforritara, og benti á að vefurinn notar 103 HTTP beiðnir við það eitt að hlaða forsíðuna.
Síðan þá hefur vefurinn verið uppfærður, útlitinu breytt og eitthvað hreinsað til í þessu rugli, en helvítið er enn 87 HTTP beiðnir. 87 beiðnir er alveg sjúklega mikið. Forsíðan á sveinbjorn.org er yfirleitt á bilinu 7-10 HTTP beiðnir. Vefurinn hans Árna er langt frá því að vera parsimonious eða bare-bones -- þar er sífellt mikið af myndum og tenging yfir í Flickr banner og alls kyns annað glingur. Samt er sá vefur ekki nema 28 HTTP beiðnir. Yahoo portal vefurinn er pakkaður af alls kyns drasli: 34 beiðnir. BBC vefurinn er 28 beiðnir.
Hvað er eiginlega að hjá gaurunum sem smíða mbl.is? Þeir ættu að skammast sín.
Ein mesta bylting sem átt hefur sér stað í netheimum undanfarin ár er án efa tilkoma Flash video á vefum á borð við YouTube. Vídeó á netinu komst einhvern veginn aldrei almennilega af stað fyrir YouTube sökum þess að alls kyns lokaðir staðlar á borð við QuickTime, Windows Media og RealMedia börðust um markaðinn. Opni Flash-staðallinn keyrir á öllum helstu vöfrum, á öllum helstu stýrikerfum, og krefst ekki að menn sæki aukabúnað í vafrann sinn. Þetta var það sem þurfti til þess að koma hlutunum í gang. Í dag á hreyfimyndefni mikla hlutdeild í almennri vefnotkun. Það er því gott að lesa að YouTube er að fara að bjóða upp á myndefni í hærri gæðum.
(Logi Helgu)
Ég vil vekja athygli á TinyMCE viðbótinni við Mentat, sem gerir öll text fields að What-You-See-Is-What-You-Get HTML editor. Þetta kann að reynast þeim vel sem finnst þægilegt að komast hjá því að skrifa eigin HTML. Það er hægt að kveikja á TinyMCE viðbótinni í Configuration Panel í Mentat Admin viðmótinu. TinyMCE virkar í Firefox, IE6+ og Safari 3+.
(Sveinbjörn)
Skarphéðinn mælti: "Eg heiti Skarphéðinn og er þér skuldlaust að velja mér hæðiyrði, saklausum manni. Hefir mig aldrei það hent að eg hafi kúgað föður minn og barist við hann sem þú gerðir við þinn föður. Hefir þú og lítt riðið til alþingis eða starfað í þingdeildum og mun þér kringra að hafa ljósverk að búi þínu að Öxará í fásinninu. Er þér og nær að stanga úr tönnum þér rassgarnarendann merarinnar er þú ást áður en þú riðir til þings og sá smalamaður þinn og undraðist hann er þú gerðir slíka fúlmennsku."
Og svo segir fólk að tímarnir breytist...
(Arnaldur)
