Results for 2007-10
Það er frekar fyndið að hugsa til þess að hér um bil hver einasti heimspekingur og hugsuður sem ég er að stúdera frá tímum Upplýsingarinnar er á Index librorum prohibitorum, lista Vatikansins yfir bannaðar bækur. Eftirfarandi höfundar eru meðal annars bannaðir, flestir opera omnia:
Michel Montaigne
René Descartes
Malebranche
Baruch Spinoza
John Locke
Erasmus
La Fontaine
Blaise Pascal
Montesquieu
Bishop Berkeley
David Hume
Immanuel Kant
Condillac
Benedict Spinoza
d'Holbach
d'Alembert
La Mettrie
Condorcet
Voltaire
Francis Bacon
Jean-Jacques Rousseau
Denis Diderot
Helvétius
Sade
Mme De Stael
Stendhal
Balzac
Victor Hugo
Gustave Flaubert
Emile Zola
Maeterlinck
Pierre Larousse
Peter Abelard,
Nicholas. Machiavelli
John Calvin
John Milton
Daniel Defoe
Jonathan Swift
Emmanuel Swedenborg
Laurence Sterne
Heinrich Heine
Henri Bergson.
Joseph Addison
Richard Steel
Daniel Defoe
Edward Gibbon
Oliver Goldsmith
Giovanni Casanova
John Stuart Mill
Ernest Renan
Emile Zola
Andrew Lang
Benedetto Croce
Rabelais
(Helgi Briem)
Um þessar mundir er ég að lesa um históríógrafíu 18du aldar, og sagnaritun skosku 18du aldar heimspekinganna, þ.á.m. Adam Smith, Ferguson, Hume og Robertson. Ég er í þessu að lesa "History of America" eftir William Robertson. Þar fer Robertson fögrum orðum um mikilfenglega skóga, dali og engi á strandlengju Norður-Ameríku, og um frjósemi og fegurð hins óspjallaða lands.
Immense forests cover the uncultivated earth; and the hand of industry has not yet taught the rivers to run to the liking of men ... The warmth of the sun and the fertility of the soil, combine in calling forth the most vigorous powers of vegetation, the woods so choked with rank luxuriance as to be almost impervious...".
Ég er langt frá því að vera "tree-hugger", en þegar ég hugsa til þess hvernig austurströnd Bandaríkjanna lítur út í dag, þá get ég ekki gert annað en að velta því fyrir mér hvenær við mannverur ætlum að hætta að eðla okkur á þeim hraða sem við gerum...
(Sveinbjörn)
"False opinions are like false money, struck first of all by guilty men and thereafter circulated by honest people who perpetuate the crime without knowing what they are doing."
(Sveinbjörn)
18du aldar heimspekingurinn Voltaire er helst þekktur fyrir að hafa skrifað meistarastykkið Candide (Birting), eina kaldhæðnustu skáldsögu sem rituð hefur verið. Ég er sem stendur að lesa mér leið gegnum bréf Voltaires. Þau bera vitni um sömu hæðnisgáfuna -- maðurinn er hnífskarpur penni.
Voltaire skrifaði eftirfarandi bréf til Jean-Jacques Rousseau eftir að hafa lesið Emile, en þar fer Rousseau illum orðum um mannskepnuna, mengaða og úrkynjaða af borgarlífinu, og hrósar hinum "náttúrulega" manni, óspilltum af siðmenningu:
I have received, Sir, your new book against the human race. I thank you for it. You will give men pleasure by telling them well-deserved truths, but you will not correct them.... Never has anyone used such wit to reduce us to animal stupidity. One feels like walking on all fours while reading your work. However, as it is now more than sixty years since I have shed this habit, I feel unfortunately that it is impossible for me to resume it, and I leave this natural gait to those more worthy of it than you or I. Sincerely, -- Voltaire
(Gunni)
Lo and behold! Hérna er nýkeypti gamli fákurinn minn, "The Tennessee Stud". Þetta sannkallaða tryllitæki flytur mig um götur Edinborgar hvern einasta dag, þótt það sé a.m.k. 20 ára gamalt. Hver segir svo að Frakkar kunni ekki að framleiða gæðavörur?

Ég fékk síðan eðalhjálm á spottprís -- flottasti hjálmurinn í versluninni var jafnframt sá ódýrasti. Hann er frekar líkur þýskum standard-issue síðari heimsstyrjaldar Wehrmacht-hjálmi, og er þar að auki með lógó sem er keimlíkt þýska Wehrmacht-krossinum:
![]() Hjálmurinn minn |
![]() Þýskur Wehrmacht kross |
(Sveinbjörn)
Fyrir ekki svo löngu síðan sagði ég frá því að ég hefði séð dauðan gaur bak við ruslagám í miðborg Los Angeles, og lofaði að setja inn mynd við tækifæri. Hérna kemur myndin, tekin í bílnum af Önnu frænku minni:

Ameríka reyndist ekki mikið "land of opportunity" fyrir þennan greyið mann...
(Gunni)
Hér brýt ég officially prinsípið mitt um að embedda aldrei Flash myndbönd í síðuna mína:
(Kalli)
Búinn að vera að æfa mikið á gítarnum undanfarið, og er strax orðinn fjandi góður. Eftirfarandi er smá bútur af mér að djamma. Ég vil meina að þetta sé býsna ground-breaking stöff:
(Dagur)
Sem hluti af The Official Sveinbjornian Self-Improvement Drive™, þá keypti ég mér gítar um daginn og er að læra á hann núna. Lærði á nikkuna á síðasta ári, og nú verður það gítarinn. Ég hugleiddi að fá mér eitthvað esóterískara, eins og balalæku eða mandólínu, en vúlgar proletaríska genið í mér sigraði:

PS: Ég veit að ég lít út fyrir að vera skelþunnur á þessari mynd, enda er ég það. Athugasemdir þess efnis eru óþarfar. Það er varla nauðsynlegt að taka það fram að drykkja gærkvöldsins var *ekki* hluti af The Official Sveinbjornian Self-Improvement Drive™, hvað sem Baudelaire hefði um það að segja.
(Dagur)
Kíkti yfir til Glasgow og djammaði núna um helgina. Edinborg er miklu næsari pleis, en Glasgow er meiri svona Berlínarfílingur. Glasgow vs. Edinborg er svolítið eins og Berlín vs. Munchen. Ungt djammpleis vs. fornt og fagurt menningarsetur.
Túristaðist síðan um Edinborg í gær og í dag:

(Sveinbjörn)


