Results for 2007-09
|
Mikið væri nú gaman ef tékkneski eðalbjórinn Starobrno héti í staðinn Brnostar. |
(Dagur)
John Wilkes var breskur radical stjórnmálamaður á 18du öld, sífellt á flótta eða í fangelsi. Hann var mikill kvennabósi og þótti afskaplega ljótur. Eftirfarandi samræða er höfð eftir þriðja aðila sem var vitni að samtali milli hans og jarlsins af Sandwich:
Earl of Sandwich: "Pon my honor, Wilkes, I don't know whether you'll die on the gallows or of the pox."
John Wilkes: "That must depend, my lord, upon whether I first embrace your lordship's principles or your lordship's mistresses."
(Eiki)
Eins og ég hef skrifað um áður, þá er Edinborg ótrúlega glæsileg borg -- ólíkt svo mörgum öðrum breskum borgum þá slapp hún alveg við loftárásir og sprengjuherferðir Þjóðverja í Síðari heimsstyrjöld. Hér koma nokkrar myndir af ferðum mínum um háskólasvæðið og miðborgina:
Kirkjan á leiðinni í skólann
Student Union -- hérna er stúdentabar og underground klúbbur þar sem djammað er um helgar. Mjög grúví.
David Hume Tower er átakanlega ljót bygging frá 7da áratugnum. Þarna er heimspekideildin til húsa. Blessunarlega er sagnfræðiskorin (þar sem ég er til húsa) í annari byggingu.
Spíran á kirkjunni fyrir neðan Edinborgarkastala.
Torgið fyrir framan aðalbyggingu háskólans.
Edinborgararkívurnar.
Edinborgarkastali
Gotneska minnismerkisspíran í miðbænum.
Skosk þjóðerniskennd á veggjum háskólans.
(Brynjar)
Hérna fyrir neðan eru myndir af pleisinu okkar Grétars hérna í Edinborg. Set síðan inn fleiri myndir af borginni seinna.
Útidyrnar á húsinu okkar
Gatan sem við búum við
Svefnherbergið mitt
Svefnherbergið mitt
Stofan
Kamína
Eldhúsið
(Sveinbjörn)
Ég keypti mér gamalt og ryðgað franskt old-school hjól í gær, og eyddi þorranum af deginum í dag í að bruna um Edinborg á því. Edinborg er ótrúlega glæsileg borg, pökkuð af gömlum 17du, 18du og 19du aldar byggingum. Höfðar alveg beint til sveinbjörnsku æsþetíkarinnar. Ég er afar stoltur af nýja sósíalistíska fararskjóti mínum, sem kostaði um 7 þúsund krónur -- ég kalla hann "The Tennessee Stud".
(Sveinbjörn)
Hef ekki skrifað neitt í svolítinn tíma, þar sem ég hef ekki haft aðgang að netinu. Ég er kominn til Edinborgar. Án málalenginga, þá er þessi borg hin argasta snilld -- virkilega falleg og hlýleg, og gott að vera hér. Vatnið úr krananum er býsna gott, loftið ferskt og kalt.
Húsnæðið sem ég deili með Grétari Amazeen er ótrúlega fínt -- 75 fermetrar, jarðhæð í raðhúsi, um 25 mínútur frá Edinborgarháskóla. Eina sem vantar er internettenging, en við ætlum að redda því með því að fá okkur monster tengingu sem allra fyrst.
Við erum þrír í prógramminu sem ég er í. Kennararnir okkar eru fjórir. Það eru semsagt fleiri kennarar í prógramminu heldur en nemendur, sem er auðvitað frábært. Samnemendur mínir eru tveir Ameríkanar sem virðast fínir. Kennslan fer fram í gegnum interactive tutorial sessions, og efnið sem ég er að fást við er mjög spennandi. Var í morgun að ræða um stjórnspeki Hobbes og Lockes. Kennararnir eru flestir frá Englandi, en ekki skoskir, sem er e.t.v. ágætt, þar sem það er alveg djöfullega erfitt að skilja hvað Skotarnir eru að segja.
Í heildina séð leggst þetta allt mjög vel í mig -- Edinborg á eftir að reynast mér betur heldur en Lundúnir. Skrifa meira þegar okkur tekst að redda internettengingu...

(Arnaldur)
Ég er í London núna, en tek lestina norður til Edinborgar síðar í dag.
Athyglisvert hvað heimurinn er lítill staður. Eftirfarandi er mynd úr grunnskólanum í bænum Linz í Austurríki:

(Sveinbjörn)
Ég fer til Edinborgar á laugardaginn næsta. Allir sem eiga eitthvað erindi við mig fyrir þann tíma ber að hafa samband fyrir þann tíma. Flugið mitt fer um morguninn.
Annað hvort voru forfeður okkar eigi smekkfólk mikið, eða Engilsaxneska stofninum hefur farið hrakandi. Eftirfarandi er úr Hrana sögu hrings:
Í húsum Högna hánefs voru ok tvær mæðgur; hét sú eldri Sunnefa enn hin yngri Ölrón; ok var hon þá nýfulltiða; hon var sá annar kvennkostr sem næst gekk Signýu at raun ok sjón, ok sannaðiz á henni þat sem þeir gömlu höfðu sagt um England í samstæðum, at þar væru meyar fríðar.
(Grímur)
Merkilega nokk, þá er Albert Speer Jr., sonur Alberts Speer arkítekts Þriðja ríkisins, einnig arkítekt, og rekur vinsæla arkítektastofu í Frankfurt am Main.
Ef ég gerist einhvern tímann klámmyndaleikari þá ætla ég að nota pseudonymið H. P. Lovecraft. ;)
"A crude way of trying to settle which camp [pro-capital punishment vs. anti-capital punishment] is correct is to compare murder rates in jurisdictions with and without capital punishment. This offers no support for the notion of deterrence. In 2005 there were 46% more murders per head in states with the death penalty than in those without it, and that gap has widened since 1990. The murder rate in the United States as a whole, moreover, is far higher than in western Europe, where capital punishment is a thing of the past." (Economist, Septemer 6 2007)
(Sveinbjörn)
Fyrir þá sem af einhverri ástæðu eru ekki í addressubókinni minni og fengu ekki ímeilinn:
ICELANDIC: Sæl verið þið öll, Það er um þessar mundir verið að loka netfangi mínu hjá Háskóla Íslands, sveinbt(-*A*-)hi.is, því ég er ekki nemandi þar lengur og hef ekki verið það um nokkra hríð. Að sama skapi, þá mun netfangið s.thordarson(-*A*-)lse.ac.uk sem ég hef haft undanfarið ár við London School of Economics einnig brátt verða óvirkt. Fyrir vikið bið ég alla sem eru enn með þessi netföng mín á skrá hjá sér að stroka þau varanlega út -- póstur stílaður þangað mun ekki berast til mín. Virka, varanlega og *endanlega* netfangið mitt er sveinbjornt(-*A*-)simnet.is. Það er líka þess virði að minnast á að nýjustu upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við mig (sími, netfang, heimilisfang) má alltaf finna á vefsíðunni minni, á slóðinni http://sveinbjorn.org/cv. Takk fyrir og bestu kveðjur, Sveinbjörn Þórðarson ENGLISH: Hello everybody, In the coming month, my email account at the University of Iceland, sveinbt(-*A*-)hi.is, will be shut down because I am no longer a student, and have not been for quite some time. Likewise, I will soon lose the email account s.thordarson(-*A*-)lse.ac.uk which I have made some use of in the past year while attending the London School of Economics. In light of this, I would like to ask all of you to remove these two email addresses from your address books -- email directed to these accounts will not reach me. My active, permanent and *final* email account is sveinbjornt(-*A*-)simnet.is. Many thanks. It is also worth mentioning that my current contact information (telephone no., email, postal address) can always be found on my website at the URL http://sveinbjorn.org/cv. Thank you and best regards, Sveinbjorn Thordarson
(Dagur)
Ég er hættur við að fara til Edinborgar. Þess í stað ætla ég hingað í nám. Ég er sérstaklega hrifinn af tagline skólans:
Consciousness remains even after illusion appears and disappears into the ether from whence it came.
Til fjandans með Heidegger og Hegel, þetta er alvöru heimspekinám. ;)
(Arnaldur)
