Results for 2007-08
Kominn aftur til landsins hlaðinn fríhafnarránsfeng. Verð hérna á Skerinu í a.m.k. tvær vikur í viðbót.
(Sveinbjörn)
Fór á helvíti skemmtilega tónleika með Dave Brubeck í gær í Hollywood Bowl. Karlinn eldgamall að djamma á píanóinu með öðrum djassöldungum.
Er búinn að kaupa mér nýja MacBook Pro fartölvu -- svakalegt stökk í hraða frá gömlu G4 Powerbókinni minni.
(Gunni)
"They call Los Angeles the City of Angels. I didn't find it to be that exactly, but I'll allow as there are some nice folks there." - The Narrator
Ég eyddi deginum í dag í miðbæ Los Angeles í steikjandi hita. Ég bý eins og stendur í fínu ríku hvítu hverfi sem heitir Redondo Beach. Þar eru göturnar hreinar og fólkið hvítt og keyrir um á bé-emm-vöffum. Í miðborg L.A. eru göturnar þaktar rusli. Skammt kominn inn í miðbæinn sá ég líkið af manni liggjandi í ónáttúrulegri stellingu milli tveggja gáma í hliðargötu, rotnandi í 40 gráðu hita í steikjandi sólinni [mynd birtist innan skamms]. Ég spurði hvort það ætti ekki að tilkynna þetta lögreglunni, en þá var mér sagt að menn gerðu ekki slíkt -- þetta myndi vera afgreitt fyrr eða síðar. Þetta þótti mér óhugnanlegt.
Síðan fór ég á útimarkað sem var pakkaður af fólki af rómönskum uppruna. Þar sá ég aumkunarlegan betlara sem var illa haldinn af elephantitis sjúkdómnum -- greyið maðurinn var allur afmyndaður, fæturnir svo útbólgnir að hann leit út eins og teiknimyndaskopmynd. Það er afskaplega auðvelt að lækna elephantitis á fyrri stigum með réttu lyfjameðferð, en þessi maður hefur væntanlega ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustunni hérna fyrir vestan.
Allt fullt af sætum og lögulegum stelpum hérna í L.A., enda laðar Hollívúdd sennilega að sér myndarlegustu stúlkur Bandaríkjanna. Ég hef síðan tekið eftir því að líkamshlutföll flestra karlmanna hérna eru öðruvísi en gengur og gerist í Evrópu. Anþrópómetrískar athuganir mínar fá mig til þess að slumpa á það að efri búkur L.A.-búa sé hlutfallslega lengri miðað við fætur heldur en gengur og gerist í Evrópu. E.t.v. er þetta sökum stera og viðbótarefna í kjötinu -- eða kannski bara Latínó einkenni. Erfitt að segja, samt.
Það reykir enginn hérna, og einu erlendu (read: ekki piss) bjórarnir sem fást á börunum eru Heineken og Stella.
(Arnaldur)
Ég er kominn til Kaliforníu eftir martraðarkennt ferðalag. Það er enginn brandari að komast inn í þetta land. Kannski er e-ð vit í textanum sem ég var fenginn til þess að þýða um daginn. Fingraför mín, mynd og optical scan eru nú komin inn í miðlæga bíómetríska gagnagrunn bandarískra yfirvalda.
Bandaríkin eru annars nákvæmlega eins og mig minnti frá för minni 2002. Allt voðalega stórt og plássfrekt og fullt af neonskiltum, og allt svo átakanlega nýtt.
Ætla að kíkja í Apple-búð á eftir og kaupa mér eitt stykki MacBook Pro. Þótt hér sé ekki mikla siðmenningu að finna, þá er allavega ódýrt að versla.
America is Rome reincarnate. Like the Roman empire, the American empire is vastly powerful and unfathomably corrupt. Like Rome, America imposes her civilisation upon an ungrateful world. Like Rome, America needs bread, circuses and philosopher-statesmen to forestall and yet to hasten her demise. -- Lou Marinoff
(Arnaldur)
Ég flýg til Kaliforníu næsta föstudag, og verð þar í tvær vikur. Þetta mun vera fyrsta skiptið sem ég heimsæki vesturströnd Bandaríkjanna. Öllum sem eiga áriðandi erindi við mig er bent á að hafa samband við mig fyrir þann tíma.
(Sveinbjörn)
Nýr fídus í Mentat -- sæmilega nothæfur file manager. Þetta er beta fídus, hefur verið lítið prófaður, en er kominn í alla Mentat vefina sem eru hýstir á Arakkis. Þetta ætti að minnka þörfina á því að nota FTP. Það er nú hlekkur á File Managerinn í Admin Panelinu. Hann lítur nokkurn veginn svona út hjá mér:
(Gunni)
