Results for 2007-03

27.3.2007 kl. 22:33

Pinko commie bastard, I'm gonna kill him and start a bloody revolution!

Sjáum hversu lengi það mun taka Kínverjana að blokka mig.

23.3.2007 kl. 16:32

Ég burstaði tennurnar upp úr íslensku kranavatni í gær, og það var hreint út sagt frábært -- ég fylltist bara nostalgíu. Vatnið í Bretlandi skilur mann alltaf eftir með óbragð í munninum -- enda hefur mér verið sagt að kranavatnið í Lundúnum hafi að meðaltali ferðast í gegnum meltingarkerfi fimm mannvera.

23.3.2007 kl. 01:08

Ég er kominn til Íslands og verð á Skerinu til 24. apríl. Það verður hægt að ná í mig í gamla íslenska gemsanum mínum 861-0584.

Það fyrsta sem ég gerði þegar ég var kominn gegnum tolldjöfulinn var að kaupa mér hálfan lítra af kóki og svelgja honum niður. Ég sver það, íslenskt kók er á allt öðrum kalíber heldur en þetta breska sykurpiss -- íslenskt kók er nektar Ólympus-guðanna, safinn úr eilífðareplum Iðunnar, blóð Krists og móðurmjólk gyðjunnar Kali, allt í einum pakka. Lengi lifi íslenskt kók!

19.3.2007 kl. 02:56
august comte

Ég er núna að rúlla yfir glósurnar úr Philosophy of the Social Sciences kúrsinum mínum frá því fyrir áramót, og hef snert aðeins inn á verk Augusts Comte -- sem fékk mig strax til þess að hugsa um það sem Isaiah Berlin hafði um Comte að segja:

His grotesque pedantry, the unreadable dullness of much of his writing, his vanity, his eccentricity, his solemnity, the pathos of his private life, his dogmatism, his authoritarianism, his philosophical fallacies, all that is bizarre and Utopian in his character and writings, need not blind us to his merits. (August Comte Memorial Lecture: "Historical Inevitability" 1953)

Þetta hlýtur að vera mesta "underhanded compliment" sem ég hef nokkru sinni lesið. Og það í fyrirlestri til minningar Comtes.

ken livingston

Árið 2005 keyrði Ken Livingston, eldrauði borgarstjóri Lundúna, í gegn lög sem setja svokallað "congestion charge" á bílstjóra sem keyra í miðborg London. Myndavélar taka myndir af bílnúmerum sem fara inn og út úr borginni, og bílstjórar greiða 10 pund í hvert sinn sem þeir nýta gatnakerfi miðborgarinnar. Hugmyndin var sú að skattlagning á akstri í miðborginni myndi minnka mengunina, sem var orðin ógurleg. Lögin hafa borið tilskilinn árangur, og nú er þar umtalsvert minna um umferðaröngþveiti og mengun.

Hins vegar hafa þessi lög haft önnur áhrif -- þau hafa gert akstur í miðborginni að munaði sem einungis leigubílstjórar (sem hafa það starf að keyra þarna) og ríka fólkið getur leyft sér. Bílarnir á götunum eru Benzar og BMW-ar, úr öllu hlutfalli við það sem gengur og gerist. Þannig endar hinn almenni skattgreiðandi uppi með að greiða fyrir viðhald og rekstur gatna fyrir ríka fólkið, götur sem hann hefur sjálfur ekki ráð á að keyra um. Svona geta ákveðnar vinstri-pólisíur endað á því að gagnast þeim efnuðustu.

mohammed

Þeim sem hafa flogið eitthvað undanfarin ár kann að vera kunnugt að öryggisgæsla á flugvöllum hefur stóraukist, og í dag getur maður ekki tekið hluti á borð við skæri, naglaklippur og rakvélar um borð. Þetta er allt saman mjög merkilegt -- hugmyndin er væntanlega sú að koma í veg fyrir flugrán og vopnaburð farþega.

Ég er með eftirfarandi ráð til mujahideen bræðra minna. Ef þið viljið ræna flugvél þrátt fyrir þessar rosalegu takmarkanir:

  • Kaupið ykkur flugmiða í flugið sem þið viljið ræna
  • Farið í gegnum tollinn án oddhvassra hluta
  • Kaupið hver um sig 1 lítra vodkaflösku í gleri í fríhöfninni (tollfrjálst!) og takið með ykkur um borð í vélina
  • Eftir flugtak, setjið á ykkur hanska, brjótið vodkaflöskurnar og notið glerbrotin sem vopn. Þetta hefur reynst fjölmörgum drykkjuhrútum og slagsmálahundum ágætlega -- hví ekki ykkur?

Ah! Kapítalismi, vinur okkar og kumpáni. Öryggi fyrst, nema það sé hægt að græða pening á öðru fyrirkomulagi, tjah, t.a.m. með því að selja mönnum áfengi.

17.3.2007 kl. 17:16

"America is Rome reincarnate. Like the Roman empire, the American empire is vastly powerful and unfathomably corrupt. Like Rome, America imposes her civilisation upon an ungrateful world. Like Rome, America needs bread, circuses and philosopher-statesmen to forestall and yet to hasten her demise." - Lou Marinoff

15.3.2007 kl. 23:53
ptolemy and copernicus

Var að velja endanlega titilinn á Masters ritgerðinni sem ég skila í lok sumars. Hann er eftirfarandi:

Simplicity and the Two World Systems, Ptolemaic and Copernican

Abstractið er eftirfarandi:

An historical and philosophical analysis of the role played by simplicity considerations in the late 16th and 17th century ideological shift from the Ptolemaic world system to that of Nicolaus Copernicus, as expounded in De Revolutionibus Orbium Coelestium.

Titillinn á ritgerðinni er pun á heitinu á einum af verkum Galileos, sem hét "Dialogue Concerning the Two World Systems, Ptolemaic and Copernican".

Fyrr í dag fór ég á fyrirlestur um "Social Justice" fluttan af Jonathan Wolff á vegum heimspekifélags LSE. Wolff er einn af þekktustu nöfnunum í stjórnmálaheimspeki í Englandi, þá sérstaklega fyrir að hafa tætt í sig frjálshyggju Nozicks í Robert Nozick: Property, Justice and the Minimal State, fyrir greinar sínar í Guardian og fyrir skrif sín um ójöfnuð og heimspeki velferðarstefnu.

Ég heyrði Wolffs fyrst getið þegar ég las grein eftir hann þegar áhugi minn á frjálshyggju sem stjórnmálastefnu stóð sem hæst. Efni þessarar greinar snerti sterklega inn á það viðfangsefni sem ég ætlaði upprunalega að skrifa um sem BA ritgerð.

Fyrirlesturinn var mjög góður, og snerti inn á hvort að hugtakið réttlæti gæti átt við um samfélög -- þ.e.a.s. hvort samfélög, sem slík, gætu verið réttlát, eða hvort réttlæti væri einungis eiginleiki sem ætti við um samskipti einstaklinga. Mjög áhugavert, allt saman.

13.3.2007 kl. 23:33

Úff, staglið sem ég þarf að láta út úr mér í þessu námi er hreint út sagt mannskemmandi...

13.3.2007 kl. 15:11
maistre small

Rammkaþólski savoyski aðalsmaðurinn Joseph de Maistre fyrirleit lýðræði, og áleit sem svo að ekkert lýðræðisríki gæti varið -- það hlyti að leysast upp og valdið myndi falla í hendur Guðstrúandi elítunnar. Þegar samtímamenn hans bentu á hversu vel hlutirnir gengu í Bandaríkjunum, sem höfðu þá verið sjálfstæð í 20 ár, svaraði hann:

America is cited to us; I don't know anything so impatient as the eulogies bestowed upon this child in arms. Let it grow up. (Considérations sur la France, 1796)

Rúmlega 200 árum síðar verður maður að viðurkenna að hlutirnir eru nú að þróast eins og Maistre spáði...

Ladies and gentlemen, I proudly present the pinnacle of postmodern philosophy:

Transgressing the Boundaries: Towards a Transformative Hermeneutics of Quantum Gravity

A true masterpiece.

11.3.2007 kl. 17:09

Ég er hérna með stórglæsilegan fiðluvals sem ég get engan veginn borið kenni á. Hvað er þetta?

11.3.2007 kl. 16:59

Óvægur stríðsrekstur minn í garð Internet Explorer vafrans hefur borið tilskilinn árangur. Hér er tölfræðin fyrir Febrúar síðastliðinn:

browsers breakdown sveinbjorn.org

Hann Erlendur yfirmaður minn fyrrverandi hjá FRISK ritar hér skemmtilega umsókn.

9.3.2007 kl. 15:18

Hann Hugi félagi var að segja mér að á vinnustaðnum hans, Umferðastofu, væri sprottinn upp frasinn "að púlla Sveinbjörn". Það að "púlla Sveinbjörn" felst vist í

að hrifsa stjórn á lyklaborði og mús af einhverjum við tölvuna og gera hlutinn sjálfur, því viðkomandi aðili er of lengi að því.

Ég er djúpt snortinn.

8.3.2007 kl. 21:11
mentat im bad

Verandi ofursvali recursive-function-loving forritarinn sem ég er, hef ég implementað þræði í comment kerfið í Mentat. Tjekkið á því: það er hægt að replya við athugasemdum.

Þeir sem vilja fá þetta inn hjá sér hið snarasta -- látið mig vita...

mentat im bad

Þeir lesendur mínir sem þjást af sífelldum ruslpósti hi-nem póstlistans kunna e.t.v. að hafa orðið varir við bréf undanfarna daga auglýsandi félagið Res Extensa, og ráðstefnu sem það félag heldur á næstu dögum um gagnrýna hugsun. Ég vil vekja athygli á að vefsíða félagsins keyrir á uppáhalds vefviðhaldskerfi okkar, Mentatinum sjálfum.

Á vefsíðu félagsins er því lýst sem "nýstofnað félag fólks sem hefur áhuga á og rannsakar hug, heila og hátterni fólks." En hví þá Res Extensa? Í tvíhyggju Descartes skiptist heimurinn í res extensa (þ.e.a.s. hlutir sem eru "extended in space") og res cogitans, sem er efni hugsana. Ef hugurinn telst meðal viðfangsefna félagsins þá væri res cogitans e.t.v. meira viðeigandi.

8.3.2007 kl. 13:29
7.3.2007 kl. 02:39

Eftir 3 tíma af hardcore vísindaheimspeki fór ég út að drekka í kvöld með frekar heimskum enskum gaur sem heitir Tommy. Hann dróg mig á einstaklega úrkynjaðan og vúlgar "american style" bar, þar sem ég lét ofan í mig allt of mikið af áfengi og ákvað síðan að fara heim. Ég hugleiddi strætisvagna borgarinnar í smá stund, en ákvað síðan að splæsa á leigubíl. Ég steig upp í eitt af unlicensed leigubílunum sem hengu fyrir utan barinn, og bað bílstjórann að taka mig á Liverpool Street. Á leiðinni ræddi ég passionately við hann um kosmópólítanisma, múltíkúltúralisma, stöðu fjölþóða á nútímasamfélagi og meira, og var hann mjög viðræðuhæfur og almennilegur -- okkur kom vel saman í alla staði. Ég hugsaði með mér að ég myndi gefa honum væglegt tip. Síðan stoppar félagi vor á áfangastað -- prísinn 15 pund -- ég hugsa með mér -- frekar dýrt, en alveg reasonable -- greiði manninum og stíg út úr taxanum. Hann brunar í burtu, og þá rennur upp fyrir mér að ég var hvergi nálægt Liverpool Street. Ég var einhvers staðar úti í rassgati Lundúna. Ég eyddi rúmum klukkutíma í að ganga heim.

That's it. No more Mr. Nice Guy. Hér eftir tek ég black cabs.

2.3.2007 kl. 15:59

Í gær fór ég að sjá hljómsveit heimspekideildar LSE, The Critique of Pure Rhythm spila. Eins og ég hef minnst á áður þá er hljómsveitin skipuð af starfsmönnum deildarinnar. Þetta voru algjörir snilldartónleikar -- hljómsveitin alls ekki slæm -- þar sem teknir voru allir helstu gullmolar sjötta áratugsins: Chuck Berry, Jerry Lee Lewis, Muddy Waters o.fl.

the critique of pure rhythm

Fleiri myndir hér.

Ótengt þessu vil ég síðan benda á þetta myndband -- vek sérstaklega athygli á hverju Russell svarar við að komast út úr fangelsi.