Results for 2007-02

28.2.2007 kl. 15:18

mentat.pl lénið: Allt er nú til.


Annars, til þess að ílengja umfjöllun um almennan nördaskap minn, þá var ég áðan að ræða við hann Binna félaga á MSN um AJAX tæknina (Asynchronous Javascript And XML). Var nefnilega að skrifa fyrsta AJAX-based forritið mitt (sem sjá má á Contact síðunni), og ég lét út úr mér eftirfarandi frasa í samræðunni:

safari klikkar eitthvað á að rendera rewritten block-level elements í DOMinu

Varla var ég búinn að láta frá mér þetta fyrr en það rann upp fyrir mér að ég er incurable tölvunörd, beyond *any* hope of redemption.

28.2.2007 kl. 10:17

Family Guy er snilld:

The Army: Awww Yeeeah!
26.2.2007 kl. 18:22
Von Clausewitz

Ég hef aldrei verið í neinni afneitun hvað snertir minn ofurnördastatus, en í dag rann það fyrst upp fyrir mér hversu djúpt hann ristir.

Undanfarið hef ég verið að sitja allskonar fyrirlestra í sagnfræðiskor LSE -- Í dag mætti ég í tíma í "European Warfare from the Renaissance to the 20th Century", og ég get svo svarið það, þetta var tærasta snilld -- 60 mínútur af frábæru tæknilegum atriðum um byltingu Napóleons á 18. aldar hertækni og endurstrúktúreringu von Clausewitz á prússneska hernum fyrir bardagann við Austerlitz.

Beautiful.

26.2.2007 kl. 12:34

Heimspekideild LSE er med sina eigin rokkhljomsveit, sem skipud er af kennurum vid heimspekideildina, th.a.m. med Professor John Worrall a gitar, en hann er thekktur visindaheimspekingur, og formadur deildarinnar. Og hvad aetli hljomsveitin heiti? Eftirfarandi:

The Critique of Pure Rhythm

Yessir, their eru ad spila a studentabarnum naesta fimmtudag, og eg aetla definitely ad fara ad sja tha.

Fyrir tha sem fatta ekki pun-id i nafninu, vil eg benda a eitt thekktasta og ahrifamesta heimspekirit allra tima, Gagnryni hreinnar skynsemi eftir prussneska andskotann Immanuel Kant.

25.2.2007 kl. 23:15

Scheize. Fyrir u.þ.b. 10 mínútum dottaði ég yfir Stanford Encyclopedia of Philosophy færslunni um Giambattista Vico og upplifði einn mest fucked upp draumi sem ég man eftir að hafa upplifað.

Ég var í holræsisgöngum sem voru full af rennandi blóði, minnti einna helst á Quake 2 senu. Fyrirsætan Milla Jovovich stóð þar og var að tala við mig og útskýra fyrir mér að ég þyrfti að binda endi á blóðbaðið fyrir ofan.

Síðan hrökk ég upp úr draumnum, muldrandi eitthvað, og þá stóð við hliðina á rúminu stelpan sem býr í næsta herbergi. Hún sagði við mig "Bjorn, the door to your room was open, and I heard you singing the Russian national anthem, so I just came in to see if everything was all right." Þá rann upp fyrir mér að ég kunni ekki textann í rússneska þjóðsöngnum, og ég hrökk upp úr draumnum (í annað sinn!) -- og horfði í kringum mig, og var ringlaður í smá stund, ekki alveg viss um það hvort ég væri að líða blekkingar kartesíska djöfulsins, eða byggi í Matrixnum.

Ætli það sé ekki bara tímaspursmál þar til ég vakna upp úr því að skrifa þessa þvælu?

25.2.2007 kl. 05:10

Verandi samviskusami námsmaðurinn sem er, eyddi ég ekki undanförnum klukkutímum í að læra, heldur þess í stað í að klára eldgamla 1987 tölvuleikinn Deja Vu. Mér tókst að fá leikinn í gang með vMac emulatornum og System 6. Þessi tölvuleikur er eipandi snilld -- ég gat aldrei klárað hann sem krakki, en nú hef ég loksins sigrast á nostalgíunni.

dejavu screenshot

Þeir sem eru áhugasamir um að nálgast leikinn, sem og vMac emulator með Mac ROM skjali geta sent á mig póst.

23.2.2007 kl. 09:54

Þökk sé honum Sigurði Árna Svanbergssyni snillingi get ég boðið Mentat notendum upp á banner til þess að auglýsa notkun þeirra á þessu hreint út sagt framúrskarandi vefviðhaldskerf.

Mentat Website

Eftirfarandi HTML bætir við þessum hnappi:

22.2.2007 kl. 06:13

Jæja, ég er búinn að kaupa mér flugmiða heim til Íslands 22. mars og verð þá heima í u.þ.b. mánuð.


acceptance of evolution

20.2.2007 kl. 02:40

Var að klára lesefnið fyrir morgundaginn, sem tengist Feminist approaches to science -- þetta voru þrjár neverending feminískar pómó greinar. Ég hef aldrei lesið jafn utterly worthless drivel á allri minni liðlöngu ævi -- þetta var pakkað af pseudo-scientific, pseudo-intellectual pseudo-psychoanalýtískri póstmódernistaþvælu, og greinarnar eru saman settar af frösum á borð við:

"The conceptualization of spontaneous feminist empiricist standpoint epistemology explains the production of sexist results of research with only a minimal challenge to the fundamental structural logic of scientific methodology."

Ekki djók, orðrétt upp úr greininni.

17.2.2007 kl. 15:52

Ég var í partýi í nágrenninu í gær. Það var pakkað af LSE nemendum sem voru að læra "European Studies" -- sem er eins konar crash kúrs í "how-to-become-a-Eurocrat". Verandi manneskjan sem ég er endaði ég auðvitað í pólitísku debati við fólkið. Ég sver það, sumt af þessu liði var algjörlega hopeless -- teknókratískt, anddemókratískt og almennt hrokafullt í garð hins almenna manns.

Það má ýmislegt slæmt segja um eiginleika mannkynsins, en ég hef sjaldan rekist á jafn kaldrifjaðan elítisma. Ef þetta var viðeigandi úrtak af liðinu sem mun stjórna Brussells batteríinu í framtíðinni, þá vona ég eindregið að Ísland haldi sig utan EU.

16.2.2007 kl. 03:53

Djöfull hata ég svona domain squatters. Ég tjekkaði fyrir u.þ.b. 3 mánuðum síðan á léninu arakkis.net og það var laust. Núna þegar ég ætlaði loksins að kaupa það kom í ljós að einhver skítugur cybersquatter búinn að stela því. So much for that. Ég sem ætlaði að bjóða þeim sem eru með .sytes.net hýsingu upp á *.arakkis.net hýsingu í staðinn.

15.2.2007 kl. 15:10

Athyglisvert, The Times University Rankings listar eftirfarandi sem topp 4 skólana í Bretlandi til þess að læra heimspeki:

philosophy rankings uk
14.2.2007 kl. 18:25

Mikið rosalega minnir þetta lag mig mikið á einn af mínum uppáhalds tónlistarmönnum.


Annars þá kom random quote mekanisminn neðst á síðunni minni með brilliant tilvitnun í Quine:

"Physics investigates the essential nature of the world, and biology describes a local bump. Psychology, human psychology, describes a bump on the bump."

Þetta þýðir vist að þeir sálfræðingar sem sérhæfa sig í einhverju eins og ákveðnum heilaferlum eru að rannsaka "a bump on the bump of a bump".

14.2.2007 kl. 17:40

Hérna kemur eitt mjög létt:

Lag Númer 25

11.2.2007 kl. 22:31

"Hið sanna eðli Þorbjörns er tómið"

Með þessum orðum hélt Þorbjörn berfættur til Indlands.

11.2.2007 kl. 04:14

Stundum held ég að fólkið sem vinni að notendaviðmótinu fyrir Windows sé eitthvað skrítið í hausnum. Þegar eftirfarandi gluggi poppaði upp á Windows vél uppi í skóla gat ég hreinlega ekki stillt mig og tók screenshot:

stupid windows dialog

10.2.2007 kl. 21:12

Eins og stendur þá er ég að vinna að ritgerð um Rational Choice Theory -- sem ég mun nota sem gullið tækifæri til þess að skíta yfir fictional ættingja okkar, homo economicus.

homo economicus evolution

8.2.2007 kl. 13:06
7.2.2007 kl. 18:18
wagner ring siegfried

Ég keypti mér Niflungahring Wagners um daginn, og fyrr í dag sat ég yfir námsbókunum að hlusta á Siegfried. Það rann síðan skyndilega upp fyrir mér að þetta allt saman væri kannski ekki svo góð hugmynd. Fyrir u.þ.b. 100 árum var nefnilega ungur maður í Vínarborg sem hlustaði mikið á Wagner og las heimspeki, og ekki fór nú vel fyrir honum.

Ég er þó allavega ekki að lesa Fichte, Heckel og Nietzche...

Wagner: Music to invade Eastern Europe to

2.2.2007 kl. 18:09

Það er grein um nafna minn í Latnesku Wikipediunni...

Rosalegt.

1.2.2007 kl. 22:14

Lögin sem ég kann að spila á nikkuna "as of writing":

  • Monkey Island themes: Melee Island, Pirate Ship, LeChuck's Theme
  • Drunken Sailor
  • Tetris lögin (öll)
  • Rússneska þjóðlagið Ochi Chyorny
  • Black cat, white cat stefið
  • Tom Waits: Tango 'till they're sore, Singapore, Cemetary polka, Jockey full of bourbon, Innocent when you dream, Walk away
  • Bubbi: Paranoia, Stál og hnífur
  • Greensleaves
  • Tarantella Napoletana
  • Fabrizio de André: Valze dell Amore
  • George Brassens: Mourir pour des idées
  • House of the Rising Sun
  • Bob Dylan: Knocking on Heaven's Door
  • Bob Dylan: Death is not the End
  • Megas: Gamlí sorrí gráni
  • So lonesome I could cry
  • Godfather stefin
  • Midnight Cowboy stefið
  • Little Red Riding Hood
  • Cantabile e. Brahms
  • Mad World
  • Nick Cave: Henry Lee, Where the Wild Roses Grow, The Kindness of Strangers
  • Bítlarnir: Being for the Benefit of Mr. Kite, With a Little Help From My Friends
  • Kurt Weill: Zweites Dreigroschenfinale