Results for 2006-06

30.6.2006 kl. 15:24

Smellið til þess að skoða nánar:

BibleWarning
28.6.2006 kl. 16:39

Ég var að rekast á Index Librorum Prohibitorum, lista af bókum sem bannaðar eru af Kaþólsku kirkjunni, frá 1948. Það er athyglisvert að rúlla yfir þennan lista -- þarna má finna nær öll verk Descartes, Diderots, Darwins, Flauberts, Humes, Kants, Montesquieus, Pascals, Rousseaus og Voltaires.

Hins vegar leynast hin furðulegustu (og að mér sýnist, saklausu) verk:

Lady Sydney Morgan: Italy, a journal of a residence in that country exhibiting a view of the state of society and manners, art, literature. (banned in 1822)

Samuel Richardson: Pamela, or virtue rewarded; in a series of familiar letters from a beautiful damsel to her parents. (banned 1744)

Ætli Lady Sydney Morgan hafi mislíkað framkoma Ítala, og þ.a.l. hlotið reiði sitjandi páfa? Og ætli bók Richardsons hafi verið full af sexual promiscuity?

28.6.2006 kl. 14:53

Haha, hann Árni var með link á þessa brilliant síðu, sem er með fullt af "Kitlers" -- þ.e.a.s. Kitty-Hitlers.

time breakdown of modern web design

Jæja, ég er formlega búinn að hljóta BA gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands. Útskriftin var í dag, og var sennilega ein mest tedious athöfn sem ég hef setið í gegnum, enda yfirgaf ég svæðið í þann mund sem útskrifa átti 265 manns af félagsvísindadeild. Hvernig sem því er háttað, þá er ég allavega búinn með fyrsta stökkpallinn á háskólastigi, og hugsa með létti til þess að þurfa ekki að sitja fleiri kennslustundir í Háskóla Íslands.

BA skírteini

23.6.2006 kl. 15:15

Þetta hér er hilarious grein sem Gunni benti mér á. Síðan eru tvær góðar greinar á Economist í dag, annars vegar ein um hvernig Þjóðverjar eru að díla við kommúnistafortíðina, og aðra um hver muni taka við af Bill Gates sem aðal hugbúnaðararkítekt Microsoft.

22.6.2006 kl. 15:31
I'd sell your heart to the junkman baby
For a buck, for a buck
If you're looking for someone to pull you out of that ditch
You're out of luck, you're out of luck

Ship is sinking
The ship is sinking
The ship is sinking

There's a leak, there's a leak in the boiler room
The poor, the lame, the blind
Who are the ones that we kept in charge?
Killers, thieves and lawyers

God's away, God's away
God's away on business, business
God's away, God's away
God's away on business, business

Hver þarf heimsmeistarakeppnina í fótbolta gegnum sjónvarpið þegar hægt er að fá hana gegnum netið í live ASCII.

16.6.2006 kl. 12:50

Hann Þorbjörn félagi sendi á mig myndaseríu frá Norður-Kóreu, tekna af rússneskum gesti -- þetta er vægast sagt svakalegt.

Annars vil ég benda þeim sem eru að nota Transmit FTP forritið á annað, betra FTP forrit fyrir Mac OS X sem ég hef uppgötvað, sem heitir CyberDuck.

15.6.2006 kl. 14:06
15.6.2006 kl. 12:39
11.6.2006 kl. 23:59

Haha, fyrrverandi forseti Zimbabwe hét Canaan Banana. Nafnið þótti vandræðalegt fyrir virðulegt forsetaembætti:

Under the new constitution Banana became the first president in 1980. In 1982 a law was passed forbidding citizens from making jokes about his name.

Hérna er transcript af heimsókn Davíðs Oddssonar í Hvíta Húsið. Maðurinn notar svo klunnalega og asnalega ensku að ég bara skammast mín.

Athugið eftirfarandi setningar:

I'm very happy to be here, not least on the President's birthday

The past is behind us, people are united to a future

Okay. From Iceland somewhere?

That was never -- the meeting -- was to have an agreement. Now, today I had the opportunity to explain my view of the issue to the President, and he is looking into my position and the Iceland position, but he had an open mind.

The future of Iraq is -- the future of the world is much better because of the undertaking that the United States, United Kingdom and their alliances took there. And without that done, the situation in that area of the world would be much more dangerous than it is now.

Þetta er alveg agalegt...

dabbi og georg

Courtesy of Aðalsteinn.... Þessir rússnesku réttrúnaðargaurar eru geðveikt harðir. Þetta lítur út eins og Vampire Hunter team.

Orthodox Badass

7.6.2006 kl. 15:13
Safari Icon

Safari vafrinn er sá besti á Mac OS X -- sá hraðasti og best hannaði hvað viðmót snertir. Aftur á móti hefur mér lengi þótt Firefox hafa nokkra kosti umfram hann hvað snertir vefsíðugerð og fleira. Svo er Safari auðvitað líka með þetta agalega metal mynstur á glugganum. Þetta tvennt má laga með eftirfarandi:

  • SafariStand -- getur breytt útliti, syntax-litað HTML source, látið nýja glugga opnast í nýjum tab, og marg, margt fleira. Alveg bráðnauðsynelgt.
  • Safari WebDevAdditions -- alls kyns aukafídusar fyrir þá sem hanna vefsíður (t.d. að slökkva, kveikja á CSS, myndum, römmum o.fl.), auk nýrra valkosta í contextual valblöðum (t.d. að afrita HTMLið fyrir hlekki í stað slóðarinnar)

Þessar tvær bætur gera Safari að töluvert nytsamari og betri hugbúnaði. Synd að þær eru ekki hluti af hugbúnaðarpakkanum sjálfum.

Við búum á tímum þar sem allir virðast eiga stafræna myndavél eða stafræna kvikmyndatökuvél, annað hvort sem staka græju eða sem hluta af farsíma eða tónlistarspilara. Við þetta vaknar upp sá möguleiki að athæfi manns sé fest á stafrænt form við óheppileg tilefni. Ég lenti t.a.m. nýlega í því að vera festur á vídeóupptöku þar sem ég var drukkinn í útskriftarpartýi. Þessi möguleiki á að festa mann á stafrænt form ber að varast, og ég legg til að ný sögn verði tekin í gagnið. Að stafræna einhvern er að festa athæfi hans á stafrænt form. Þá hefur viðkomandi aðila verið stafrænt -- fórnarlamb stafráns. Og þá gæti maður sagst hafa orðið fórnarlamb stafræningja.