Jæja, hafið þið lausn við þessu?
From Wikipedia, the free encyclopedia:
Incompatible Food Triad
The Incompatible Food Triad is a puzzle that allegedly originated with the philosopher Wilfrid Sellars, and has been spread by some of his former colleagues and students. To date no solution has been forthcoming.
The problem is this: Find three foods, such that any two of them go together, but all three do not.
We understand "go together" in any reasonable sense of the expression, as it is ordinarily applied to foods.
One way of seeing the problem is this: given three foods that don't go together, it's usually because two of them don't go together. For example, Richard Feynman's famous example of accidentally requesting milk and lemon in his tea is not a solution: (1) Milk, tea, and lemon do not go together. (2)(a) Tea and lemon do go together, (b) Tea and Milk do go together, but (c) Milk and lemon do not go together. For the solution to work milk and lemon would have to go together as well. Most attempted solutions tend to overlook one of the three pairs.
The problem can also be formulated thus: Find a counter example to either of the following alleged theorems (where R(x,y,...) means "x, y, ... all go together") :
(1) Given any three foods A, B, and C, if [R(A,B), R(A,C) and R(B,C)] then R(A,B,C)
(2) Given any three foods A, B, and C, if ~R(A,B,C) then [~R(A,B) or ~R(A,C) or ~R(B,C)].
(Dagur)
Æi, þetta er geðveikt bogus vandamál! Og hefur ekkert praktískt gildi.
Þessi Sellars er bara fraudulent bastard sem ætti að brenna, at the stake, fyrir að sóa precious akademískum tíma, sem gæti verið að fara í e-ð nytsamlegt, eins og að finna upp atóm-nanóbota sokka sem þarf aldrei að þvo.
Ég neita að líta á þennan gaur sem einhvern snilling og finnst glatað að hann sé með wikipediufærslu.
Súkkulaði og skinka er ekki gott saman.
Og þetta er auðvitað bógus vandamál í þeim skilningi að lausnin hefur ekkert praktískt gildi. En þeetta er svosem alveg skemmtilegt mental exercise ;)
Og Sellars var víst mjög klár maður -- ég las bók eftir hann sem heitir Empiricism and the Philosophy of Mind, og hún er afar merkilegt heimspekirit.
Talandi um að mjólk og sítróna fari ekki vel saman. Það minnir mig á eitt atvik sem ég lenti í þegar ég var í skólaferðalagi í Danmörku vorið '96. Ég gisti hjá danskri fjölskyldu í viku og eitt sinn við matarborðið þá var boðið upp á ýmislegt að drekka. Ég var mjög þyrstur og það eina sem mér leist vel á sem í boði var, var köld mjólk. Ég helti í glasið og tók góðan sopa. ÆÆÆÆÆÆÆL!!! Þetta var einhver djöfulsins viðbjóður. Mjólk með sítrónubragði! Hverjum dettur í hug að framleiða svona viðbjóð. Ég píndi þetta ofan í mig af kurteisisástæðum og hef enn ekki beðið þess bætur.
Það sem ég meinti með númer 1 hjá Feynman er það að það gengur einmitt ekki að nota það sem lausn á þessu vandamáli. Þó svo að mjólk og sítróna fari ekki saman þá vildi ég líka segja það að te, mjólk og sítróna fara ágætlega saman þannig að það er annað atriði sem gengur ekki í lausn Feynmans. M.ö.o. hans "lausn" er meingölluð.
Heheh, dáldið merkilegt. Heitt vatn, kakóduft og sykur er eiginlega lausn á öfugu vandamáli við vandamálið sem Sveinbjörn kom með. Heitt vatn og kakóduft er ekki svo gott án sykurs (eða er það ekki rétt?), heitt vatn og sykur er ekkert æðislegt og kakóduft og sykur ekki heldur. En allt saman er það ansi gott. Þannig að þetta er akkúrat öfugt.
Ætli það sé kannski eitthvað notagildi við lausn á þessu vandamáli? Hmmm... Gæti það aldrei komið sér vel að vita um eitthvað þrennt sem virkar ekki saman þó að innbyrðis virkar það allt tvennt saman? Er ekkert scenario, engar hugsanlegar aðstæður? Ég sé fyrir mér breska sakamálamynd þar sem þetta vandamál gegnir lykilhlutverki. En ég get aftur á móti engan veginn séð nákvæmlega hvernig. En mig langar drullumikið að sjá þessa mynd!
Einmitt...
Seinni línan hjá mér átti að vera:
R(A,B,C) && ~R(A,B) && ~R(A,C) && ~R(B,C) áður en perl parserinn í kommentakerfinu eyddi út öllu í hornklofunum.
En þegar ég skoða þetta betur kemur það vandamálinu ekkert við (Það að finna dæmi um B=>A þegar fullyrt er að A=>B er tilgangslaus rökvilla).
Meikaðu milljónir og bjóddu mér svo upp á bjór. Hmmm... bjór og milljónir fara vel saman. Bjór og Sveinbjörn fara vel saman, right? Sveinbjörn og milljónir, sounds good? En Sveinbjörn, bjór og milljónir fara alveg ömurlega saman. Þú eitthvað á rassgatinu, á þínu nýríka rassgati, flaunting seðlunum út um allt, alveg óþolandi!

0
▽
Þú hefðir átt að bíða með að pósta þessu til 1. apríl. Fólk hefði þá hlaupið apríl með því að eyða tíma og orku í að hugsa út í þetta. Það virkaði vissulega á mig! Nú hef ég ákveðið að hugsa aldrei um þetta framar.